152. löggjafarþing — 64. fundur,  7. apr. 2022.

aðbúnaður, hollustuhættir og öryggi á vinnustöðum.

590. mál
[19:44]
Horfa

Jóhann Páll Jóhannsson (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir þetta andsvar. Það er auðvitað þannig að NPA er einhver mikilvægasta réttarbót sem hefur verið lögfest fyrir fatlað fólk hér á landi. Það var ekkert að ástæðulausu sem fólk fagnaði mjög ákaft þegar lögin öðluðust hér gildi. En það er ótrúlega alvarlegt að gefa fólki falska von. Núna síðasta sumar skiluðu sveitarfélögin inn upplýsingum til félagsmálaráðuneytisins um biðlista vegna NPA. Reykjavíkurborg sendi upplýsingar um að það væru 28 umsækjendur á biðlista. Heildarkostnaður vegna þeirra samninga væri þá, miðað við árið 2021, u.þ.b. 824 milljónir. Framlag ríkisins þyrfti þá að vera 206 milljónir til þess að standa straum af þessu bara til að eyða þessum biðlista í Reykjavík — 206 milljónir. Til samanburðar má nefna að gamni að þóknunartekjur vegna þessarar misheppnuðu bankasölu voru 700 milljónir. Þannig að ef t.d. þessir söluráðgjafar sem voru að hringja í vini sína — fengu ekki einhverjir þeirra, þeir sjálfir, jafnvel að kaupa? Ef við hefðum sparað bara þessar þóknunartekjur til þeirra úr ríkissjóði þá hefði verið hægt að standa straum á þessu ári af kostnaði við að eyða biðlistanum í Reykjavík. Ég nefni það bara sem dæmi um forgangsröðunina og fjármögnunina sem er um að tefla. Vandinn er ekki að það séu ekki til peningar. Vandinn er bara forgangsröðun þessarar hægri stjórnar.