aðbúnaður, hollustuhættir og öryggi á vinnustöðum.
Virðulegur forseti. Hv. þingmaður segir að vandinn sé ekki að það vanti peninga. Ég ætla að leyfa mér að vera sammála honum um það sem hann minnist á varðandi þessar þóknunartekjur sem fara út úr ríkissjóði til verðbréfamiðlara, 700 milljónir til verðbréfamiðlara. Við erum með börnin okkar mörg hver illa haldin af kvíða og þau geta ekki borgað sálfræðiþjónustu sem kostar 20.000–25.000 kr. tíminn. Til að koma fjárlögunum í gegn, svo ríkisstjórnin fengi þennan blessaða minni hluta til að slaka aðeins á, þá samþykktu þau 250 milljónir í sálfræðiþjónustu. Við óskuðum eftir 900 milljónum en það fengust 250. Til viðbótar við þessar 700 milljónir sjáum við að ráðherrastólarnir kostuðu nú ansi mikið. Alla þá fjármuni sem þarna um ræðir hefði verið hægt að nýta í þjónustu við þá sem verst standa í þessu samfélagi, m.a. þá einstaklinga sem þurfa á NPA-samningum að halda. Hér voru nefnd hundruð milljóna í þjónustu sem Reykjavíkurborg þyrfti að leggja út ef það kæmi fjármagn frá ríkinu. Þetta er það sama í mínu sveitarfélagi, það vantar vel á annað hundrað milljóna fyrir fólk sem bíður á biðlistum eftir NPA-samningum, þannig þetta er úti um allt. Við erum með fatlaða einstaklinga úti um allt og við þurfum og okkur ber skylda til að sinna þeim. Ég skil ekki að verið sé að gera þetta með þessum hætti og ég skil heldur ekki að það eigi að fara að reyna að gera eitthvað betur í þessum málaflokki á kostnað þeirra starfsmanna sem eiga að sinna þessu.