152. löggjafarþing — 64. fundur,  7. apr. 2022.

aðbúnaður, hollustuhættir og öryggi á vinnustöðum.

590. mál
[19:57]
Horfa

Jóhann Páll Jóhannsson (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Jú, mér finnst þetta einmitt mjög afhjúpandi samhengi sem dregið er upp hérna. Ég minni bara á að lögin um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir eru lög sem, rétt eins og lög um almannatryggingar, tryggja fólki ákveðinn rétt. Í lögunum segir, með leyfi forseta:

„Á innleiðingartímabilinu veitir ríkissjóður framlag til eftirfarandi fjölda samninga um notendastýrða persónulega aðstoð sem skal ráðstafað í gegnum Jöfnunarsjóð sveitarfélaga sem tiltekinni hlutdeild af fjárhæð samninga, á grundvelli umsókna frá sveitarfélögum: Á árinu 2022 vegna allt að 172 samninga.“

Það er mjög skýrt í lögunum og það eru engir fyrirvarar settir þarna. Það er ekkert skilyrði um það „ef kostnaður við þjónustuna er viðráðanlegur“. Það er ekkert svoleiðis þarna. Þetta eru bara réttindi sem fólk hefur og þau eiga að vera tryggð með þessu bráðabirgðaákvæði. Við erum í þeirri stöðu að vera með ráðherra hérna sem — það er ekki bara þannig að hann viðurkenni hérna í ræðustól að þessi lög verði brotin á þessu ári, heldur getur hann ekki einu sinni lofað því og lagt heiður sinn og pólitíska æru að veði um að þessum fyrirheitum um fjármögnun samninga á þessu ári verði fylgt næstu fimm árin — næstu fimm árin. Þetta er ótrúlegt. Þetta er ekki velferðarpólitík, þetta er bara sama gamla fjársveltistefnan.