152. löggjafarþing — 64. fundur,  7. apr. 2022.

aðbúnaður, hollustuhættir og öryggi á vinnustöðum.

590. mál
[20:35]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (Flf):

Virðulegur forseti. Við erum hér að ræða frumvarp til laga um breytingu á lögum um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum, vinnutíma starfsmanna sem veita notendastýrða persónulega aðstoð. Þetta er hið besta mál. Loksins, loksins erum við að fara að klára þetta mál. Þetta hefur verið, ef ég má kalla það því nafni, hálfgerður bastarður undanfarin ár. Maður hefur alltaf rekið upp ramakvein á hverju einasta ári þegar þetta mál hefur komið inn á borð og ég skal alveg viðurkenna að ég hrökk í kút þegar ég heyrði fyrst nefnt að þetta mál væri að koma á dagskrá og hugsaði: Ekki erum við einu sinni enn að fresta þessu í eitt ár? Sem betur fer erum við ekki að gera það núna. En það sem er kannski leiðinlegt við þetta mál er að það er svolítið seint fram komið vegna þess að undanþágan féll úr gildi í lögum um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum, var í gildi til og með 31. mars 2022, féll úr gildi núna 1. apríl og það var ekki aprílgabb heldur alveg staðreynd, því er nú verr og miður.

Ég er búinn að vera að kynna mér þetta mál í dag og ég verð að segja alveg eins og er að mér sýnist málið vera vel unnið og unnið í samstarfi við bæði þá sem eiga að nota þjónustuna og líka félaga þeirra. Það er alveg frábært. Ef maður skoðar málið í heild sinni þá varðar þetta vinnutíma þess starfsfólks sem er að aðstoða þessa einstaklinga. Aðstoðarfólkið í NPA er um 245 manns og í heildina eru það kannski nálægt 300 manns sem eru með umsýslu fyrir NPA-félaga. Það sem er kannski merkilegast við þetta að mörgu leyti, og kemur fram í frumvarpinu, er að að stærstum hluta eru það sennilega konur sem vinna þessi störf. Þeir benda á í frumvarpinu að samkvæmt Hagstofa Íslands störfuðu 18.400 konur á móti 5.300 körlum við heilbrigðis- og velferðarþjónustu. En þarna er verið að taka á atriði sem var svolítið ágreiningsefni á sínum tíma, sem var sveigjanleikinn, að viðkomandi gæti jafnvel unnið í sólarhring eða jafnvel lengur vegna þess að aðstæður þeirra sem nýta sér þessa þjónustu eru svo misjafnar.

En það sem við verðum að taka tillit til þegar við erum að fjalla um málefni þeirra sem nota NPA er að það eru takmarkanir. Það eru þarna, eins og ég segi, kannski 250, 300 aðstoðarmenn. En á sama tíma er vitað um nærri 200 manns sem er búið að loka inni á hjúkrunarheimili eða inni á heimili sínu og fá ekki þessa þjónustu. Ég segi fyrir mitt leyti: Það hlýtur að vera eitt það skelfilegasta sem þú getur lent í, að lenda í þeirri aðstöðu að þú þurfir á notendastýrðri persónulegri aðstoð að halda, ert í þeirri aðstöðu að þú getur ekki neina björg þér veitt en hefur bara um tvennt að velja; að liggja heima hjá þér í rúmi ósjálfbjarga og treysta á vini og ættingja til að aðstoða eða láta vista þig inn á hjúkrunarheimili og það löngu fyrir aldur. Á hjúkrunarheimili er reiknað með að fólk sé orðið 67 ára og eldra. En það er því miður vitað að það eru mun yngra fólk sem hefur verið vistað þar inni og það er víst nú þegar farið að nálgast 200 manns.

Við erum búin að vera að fjalla um fjármálaáætlun núna undanfarið og þar kom fram sú staðreynd að það er áætlað að setja um 320 milljónir í þennan málaflokk en það er eingöngu til að tryggja núverandi ástand. Það sem er kannski sorglegast í því samhengi er það að bæði NPA-félagar og Öryrkjabandalagið og fleiri eru knúnir til þess að þurfa að fara í málaferli við sveitarfélögin til þess eins að krefjast þess sjálfsagða réttar fólks að það fái þá þjónustu sem það á rétt á hjá sveitarfélögunum. En sveitarfélögin vilja kvótasetja þetta og sum sveitarfélög telja sig hreinlega ekki geta framfylgt þessum samningum. Og þetta er auðvitað stór galli á þessari þjónustu að með samningnum sem á sínum tíma var gerður var reiknað með aukningu ár frá ári en það virðist algerlega vera stopp núna og sum sveitarfélög treysta sér ekki í þetta og telja að þau hafi borið mjög skarðan hlut frá borði í samningum við ríkið. En það verður bara að segjast alveg eins og er að ríkið verður að koma myndarlega inn í þetta mál vegna þess að það er á engan hátt hægt að bjóða einstaklingum í dag upp á það að vera fangar á sínu heimili eða fangar á hjúkrunarheimili. Við eigum dæmi um kröfu einstaklings og ákall ár eftir ár sem var lokaður inni í því umhverfi. Ég segi bara fyrir okkur öll að enginn af okkur myndi vilja láta nauðungarflytja sig yfir á stofnun eða vera fastur eða fangi á sínu heimili.

Þegar þetta mál kemur til velferðarnefndar þá munum við vonandi fara vel ofan í það og kalla til þau félagasamtök sem hafa tekið þátt í að semja það. Við vitum að það er líka inni í þessu endurskoðunarákvæði, ef ég man rétt, 2025, og þá vonandi verður komið betur í ljós hvernig réttindi þessa fólks eru tryggð og hvernig þetta virkar í framkvæmd vegna þess að það sem kannski var og hefur verið mesta áskorunin í þessu er hversu mismunandi þarfir hver og einn einstaklingur hefur. Þar af leiðandi segir það sig sjálft að það sem hentar einum einstaklingi í þessu, t.d. með vinnuhagræðingu, getur ekki hentað öðrum og þar af leiðandi verður að vera gífurlega sveigjanlegur rammi í kringum þetta. Við trúðum því statt og stöðugt á sínum tíma og við fögnuðum ógurlega, og ég held að enginn hafi fangað eins mikið og fyrrverandi hæstv. félagsmálaráðherra, Ásmundur Einar Daðason, þegar samningar voru gerðir um málefni NPA og við trúðum og héldum þá og það héldu það allir að núna værum við komin af stað og núna myndum við ekki stoppa. Krafan var eiginlega um að það yrði séð til þess í eitt skipti fyrir öll að auka fjölda samninga smátt og smátt. En staðreyndin talar sínu máli. Þessir samningar eru aðallega og hafa aðallega verið hérna á Stór-Reykjavíkursvæðinu vegna þess að það virðist vera þannig, í því hvernig var gengið frá þessum samningum, að minni sveitarfélög treysta sér ekki til að taka á þessum samningum sem gerir það að verkum að það eru einstaklingar úti á landi sem standa mun verr að vígi til að nýta sér samninginn og þurfa jafnvel hreinlega að flytja til að hafa möguleika á að komast inn í þennan samning. Það segir okkur að við þurfum að leysa það mál og ég tel að það ætti ekki að vera mikið vandamál. En eins og við höfum séð og sjáum líka í fjármálaáætlun þá er ekki gert ráð fyrir neinu fjármagni nema bara eingöngu til að viðhalda núverandi stöðu. Það er gjörsamlega ólíðandi vegna þess að það er bara verið að senda þeim sem eru næstir inn í þetta kerfi skilaboð: Þið fáið ekki að vera með.

Við urðum vör við það í dag, það féll dómur í Hæstarétti í búsetuskerðingarmálinu. Þar beið einstaklingur í sex ár, fór í gegnum allt dómskerfið, eftir réttlæti og þegar hann loksins fékk réttlætið þá gagnaðist það honum ekki vegna þess að viðkomandi var dáinn. Þess vegna segi ég: Það er auðvitað alveg grafalvarlegt mál þegar þetta veikir einstaklingar telja sig vera númer eitt til að fá þessa þjónustu en þá er þeim bara stillt upp við vegg og sagt: Nei, það verður ekki meira gert. Sá einstaklingur mun þá ekki vita hvenær kemur að honum eða næstu tíu eða næstu 100 sem koma þar á eftir. Við erum með þessu máli að leysa hér, sem er frábært, vinnuaðstæður og vinnumálin þannig að það sé hægt að ganga í það að vinnuumhverfið sé löglegt, að allt sé eins og það eigi að vera og allir búnir að ganga frá sínum málum, núna eru bara hlutirnir tilbúnir, en þá er á sama tíma sagt: Nei, við getum ekki meira, þetta er bara nóg. En þetta er ekki nóg. Það er ekki nóg komið fyrr en allir sem vilja fá þessa þjónustu hafa fengið hana. Það er svo oft sagt um málefni þeirra sem verst hafa það að þeir séu svo fáir. En samt er ekkert gert. Í þessu tilfelli eru þetta fáir einstaklingar. Þetta er ekkert óyfirstíganlegan hindrun. Við erum hér á sama tíma að gefa þvílíka fjármuni í afslátt. Við hikum ekki við að setja milljónir, meira en þessar 320 milljónir hér, í einkarekna fjölmiðla t.d., sem er svolítið skrýtið miðað við nafnið, að einkareknir fjölmiðlar fái ríkisstyrk. Við höfum sett fjármuni án þess að hika, án þess að blikna, rúmlega 11 milljarða í sýnatöku vegna Covid. Það er bara fínt. En ef við höfum efni á því þá hljótum við að hafa efni á því að sjá til þess í eitt skipti fyrir öll að þeir sem eru verst settir í okkar samfélagi í þessu, miðað við fötlun, og þurfa á þessari þjónustu að halda fái hana. Þeir eiga rétt á henni og þeir eiga að fá hana. Við eigum að taka tillit til þess og sýna réttlæti og jafnrétti og við verðum að hætta að segja: Þú færð þetta, en þú færð ekki. Hvers vegna fær þessi þetta, en hinn ekki? Jú, vegna þess að hann var á réttum stað í röðinni en hinn á röngum stað í röðinni. Þar af leiðandi er sagt við þann einstakling sem er á röngum stað í röðinni: Nú verður þú bara að velja, að vera lokaður inni heima hjá þér og fá ekki þjónustuna eða fara á hjúkrunarheimili innan um eldri borgara og bíða þar í því fangelsi, kannski fimmtugur, kannski yngri. Ég held að við getum öll fullyrt það hér í þingsal að ef eitt okkar, hver sem það væri, væri í þeirri aðstöðu í dag myndum við ekki sætta okkur við það, aldrei. Við myndum gera þá skýlausu kröfu að við eigum þann rétt, alveg eins og allir aðrir, að lifa sjálfstæðu lífi, eigum rétt á að fá notendastýrða persónulega aðstoð.