aðbúnaður, hollustuhættir og öryggi á vinnustöðum.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir framsöguna. Þar sem hv. þingmaður hefur góða innsýn inn í þann heim sem við erum að tala um hér, og líka inn í það hvernig við höfum byggt upp kerfin okkar sem eiga að hjálpa þeim sem eru ekki færir um að lifa sama þægilega lífi og við í þessum sal, þá langar mig að spyrja hann. Mér finnst eitt svo svakalega skrýtið við þessa lagasetningu sem tengist notendastýrðri persónulegri aðstoð. Sett voru ákveðin markmið um hvernig við ætlum að byrja að búa til samninga og gera hlutina og það virðist bara ekki skipta neinu máli. Það er bara sagt: Æ, nei, peningarnir eru búnir. Á sama tíma erum við með önnur kerfi og það er sem betur fer ekki þannig að það sé bara komið til öryrkja sem eru að sækja um og sagt: Æ, nei, sorrí þú ert öryrki nr. 387 í ár. Þú færð ekki neinn pening. Eða: Þú ert atvinnulaus nr. 802 á þessu ári, sorrí þú færð ekki neinn pening. Eða: Varstu að verða 67 ára? Já, nei, við erum búin með þá sem fá ellilífeyri á þessu ári. Í þessu kerfi er það hins vegar: Nei, við erum búin með númerin á þessu ári. Við ætlum ekkert að standa við gefin loforð eða gefnar áætlanir. Er ekki eitthvað bilað í þessu kerfi?