aðbúnaður, hollustuhættir og öryggi á vinnustöðum.
Virðulegur forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Ég segi jú við öllu sem hann sagði. En það er ekki bara í persónuafslættinum sem þetta er svona: Stopp, það eru ekki til peningar. Þú getur líka lent í því hjá Tryggingastofnun sem öryrki að sagt sé við þig: Nei, þú þarft að kæra til úrskurðarnefndar almannatrygginga, þú færð ekki neitt. Ég þekki það alveg út og suður. Og ellilífeyrir, þú færð búsetuskerðingar, það eru 10% búsetuskerðingar, þú færð bara 90%, krónu á móti krónu. Við sjáum þetta alls staðar í kerfinu. Það er alls staðar verið að pota í og sérstaklega í þessu kerfi. Þess vegna er alveg ömurlegt til þess að vita, vegna þess að mikill metnaður var lagður í þetta og því var mjög fagnað af ráðherra á sínum tíma þegar NPA-samningarnir voru gerðir, að núna þegar hæstv. fyrrverandi félagsmálaráðherra, Ásmundur Einar Daðason, er farinn þá er bara allt stopp. Ég spyr mig hvers vegna og það virðist engin skýring vera á því. Það er ömurlegt til þess að vita að á sama tíma og Öryrkjabandalagið er nýbúið að vinna slaginn um búsetuskerðingar í gegnum þrjú dómsmál þá verði að dómtaka þetta. Á sama tíma verður einmitt að dómtaka gegn sveitarfélögunum það að þetta sé stoppað og sagt: Kvótinn er búinn, það verður ekkert meira. Síðan kemur ríkið með fjármálaáætlun sem setur í þetta 320 milljarða bara til að viðhalda því sem er í dag. Þetta var ekki það sem um var samið. Ég þarf að draga það upp en ég man að það átti að vera aukning ár frá ári. En ég held að þeir séu bara að túlka það þannig (Forseti hringir.) að það hafi bara átt að vera á síðasta ríkisstjórnartímabili, ekki á þessu.