aðbúnaður, hollustuhættir og öryggi á vinnustöðum.
Frú forseti. Ég vil þakka fyrir svör hv. þingmanns. Ég reyndi að spyrja hæstv. ráðherra áðan hvernig stæði á því að það væri verið að svíkja fólk, svíkja loforð, að það væri verið að brjóta niður þær vonir sem fólk hefði um frelsi, um það að geta lifað mannsæmandi lífi þrátt fyrir að þurfa þessa miklu aðstoð. Þá koma afsakanirnar: Þetta var nú dýrara en við héldum og það var þetta og hitt og en nú erum við að fara að gera greiningu. Nú erum við með nefnd í að greina þetta. Ég sagði í ræðu fyrr í kvöld að mér fyndist eitthvað mikið vera að þegar við værum að setja svona lög og ætlast til þess að einhver annar borgi. Við segjum bara: Þetta er ekkert mál. Segjum bara eins og hv. þm. Guðbrandur Einarsson orðaði það áðan: Já, fríir leikskólar en sveitarfélögin þurfa að borga það. En á meðan erum við ekki að tryggja það að þau hafi meiri tekjur og við erum ekki að tryggja það hér að meiri peningur sé settur í þetta mál þó að þörfin sé til staðar, þó búið sé að finna út úr því, og búið að greina að þetta kostar meira. Hvað þurfum við sem Alþingi að gera til að vinna svona lög og svona frumvörp betur þannig að forsendur séu fyrir þeim loforðum sem verið er að gefa fólki (Forseti hringir.) svo við þurfum ekki að svíkja fólk aftur og aftur um það sem það er búið að gera sér vonir um?