152. löggjafarþing — 64. fundur,  7. apr. 2022.

aðbúnaður, hollustuhættir og öryggi á vinnustöðum.

590. mál
[21:06]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Og jú, loforð. Hvað getum við gert? Ég verð bara að segja alveg eins og er að eins og staðan er núna, miðað við þetta, þá þarf aðra ríkisstjórn. Þessi ríkisstjórn er ekki að fara að gera neitt nema að Öryrkjabandalagið, NPA semji upp á nýtt. Það verður greinilega að semja upp á nýtt. Við verðum að taka þann pakka. En vandamálið sem ég held að sé nú til staðar er að það er búið að kjósa. Síðast þegar var samið var þessu lofað fyrir kosningar. Nú er engu lofað og þá er bara klippt á, þá er þetta bara stopp, ekkert meira. Þetta eru einmitt vinnubrögðin. Við þekkjum vinnubrögðin sem ég hef verið að gagnrýna hér undanfarið, eins og í sambandi við fría heilsugæslu. Jú, hún er frí, en hvar tókum við peninginn? Jú, við færðum það bara yfir til sjúkraþjálfara, til sérgreinalækna, þeir taka meira annars staðar frá en fría heilsugæslan kostaði. Þetta er bara millifærsla. Og það sem er fáránlegt í þessu öllu er að þeir eru ekkert að spara sér pening. Það er margsannað að ef þú setur peninga í eitthvert svona kerfi þá skilar það sér margfalt í gæðum, í færri sjúkrahúsinnlögnum, í minni lyfjakostnaði. Ef við tölum bara um frelsi og mannréttindi og lífsgæði þess fólks sem er verið að loka þarna inni þá segi ég bara fyrir mitt leyti: Ég var millimetra frá því að vera þarna megin og það veit enginn hvort hann lendir þeim megin. Og þá vill sá, hvort sem hann er í ríkisstjórn eða í stjórnarandstöðu, hafa NPA í lagi.