152. löggjafarþing — 64. fundur,  7. apr. 2022.

aðbúnaður, hollustuhættir og öryggi á vinnustöðum.

590. mál
[21:08]
Horfa

Helga Vala Helgadóttir (Sf):

Frú forseti. Ég vil byrja á því að óska hæstv. félags- og vinnumarkaðsráðherra til hamingju með að hafa ekki komið hingað inn með frumvarp sem á að framlengja fresti til að taka á vinnutíma starfsmanna sem veita notendastýrða persónulega aðstoð heldur virðist vera sem við séum nú komin með frumvarp í hendur til að vinna á því tiltekna viðfangsefni. Það hefur nefnilega verið þannig, frú forseti, undanfarin ár að við höfum verið að nota tíma þingsins hér í þingsal og í fastanefndum til að framlengja fresti til að taka ákvörðun um hvernig þessi vinnutími eigi að vera þannig að ég fagna því að það sé loksins komið mál hingað inn í þingið. Ég verð þó að vekja athygli á því að fyrra frumvarp var látið gilda til 1. apríl, og það var að mínu frumkvæði, einmitt af því að við vorum alltaf að framlengja þessu ár eftir ár, við sáum fyrir þegar við afgreiddum síðasta frumvarp að þetta yrði ekki tilbúið, yrði ekki búið að vinna það fyrir áramót. Það lá alveg ljóst fyrir að svo yrði ekki. Við vorum að fara að ganga í gegnum kosningar og þess háttar. En þá er mjög brýnt að hv. velferðarnefnd ýti mörgum öðrum málum til hliðar, sem eru þó auðvitað mikilvæg í þeirri nefnd, og vinni þetta mál af því að núna starfar starfsfólk í þessum viðkvæmu störfum í ákveðinni lagalegri óvissu.

Ég ætla ekki að fjalla lengi um innihald þessa frumvarps heldur meira um aðstæður fólks sem nýtir notendastýrða og persónulega aðstoð og hvernig okkur hefur ekki tekist að uppfylla þau lagaákvæði sem þessi mögnuðu lög setja okkur. Það er ótrúlega sorglegt hvernig ríkið, hvernig stjórnvöld, hvernig ríkisstjórnin hefur tekið ákvörðun um að framfylgja ekki því sem lögin segja til um. Sett var ákvæði til bráðabirgða í lög um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir, um það hvernig skyldi framfylgja þessum lögum. Það er tekið skýrt fram þar hvað eigi að nýta mikið fjármagn, hversu marga samninga eigi að gera og það er alveg eðlilegt að það sé tekið í ákveðnum skrefum. Það þarf auðvitað að gera ákveðna rannsókn á því hve margir þurfa þessa þjónustu, hve margir geta nýtt þessa þjónustu, hversu marga við höfum sem geta starfað við að veita þessa þjónustu o.s.frv. Á fyrsta ári eftir að lögin voru sett þá átti að hafa allt að 80 samninga árið 2018. Strax ári seinna, 2019, fyrir þremur árum, skyldi gera allt að 103 samninga. Þá erum við að tala um að í þessu tiltekna bráðabirgðaákvæði segir, með leyfi forseta:

„Á innleiðingartímabilinu veitir ríkissjóður framlag til eftirfarandi fjölda samninga um notendastýrða persónulega aðstoð sem skal ráðstafað í gegnum Jöfnunarsjóð sveitarfélaga sem tiltekinni hlutdeild af fjárhæð samninga, á grundvelli umsókna frá sveitarfélögum:“ — og strax árið 2019 var talað um 103 samninga.

Frú forseti. Árið 2021 í árslok voru samningarnir 90. Við eigum árið 2022 að vera með 172 samninga. Við erum með næstum því helmingi of fáa NPA-samninga á Íslandi í dag, velferðarríkinu, ríka Íslandi þar sem ráðherrarnir ferðast um heiminn til að segja hvað við erum flink og góð við fólkið okkar. Við erum búin að setja stöðuna þannig upp að það eru sveitarfélögin sem halda utan um framkvæmdina. Það er þar sem umsóknarferlið fer fram. Það eru líka sveitarfélögin sem sitja uppi með það að þurfa að verjast fyrir dómi af því að það eru einstaklingar sem hafa verið að láta á þetta reyna þegar ekki hefur verið gengið frá samningi við þá. Lögin segja að það eigi að vera 172 samningar á þessu ári. Einstaklingur sem er í brýnni þörf fyrir þessa þjónustu ákvað að láta á þetta reyna í Mosfellsbæ og niðurstaða héraðsdóms var sú að sveitarfélagið var dæmt til greiðslu miskabóta fyrir það að hafa ekki gert samning við einstaklinginn. Málinu var áfrýjað til Landsréttar og Landsréttur sneri niðurstöðu héraðsdóms við. Það er athyglisvert hvernig Landsréttur tekur á því máli af því að í rauninni virðist vera mikill skilningur á þessum málum og hvernig þau eru læst inni. Skaðabótakröfunni var í raun hafnað af því að sagt var að sá sem höfðaði málið hefði ekki getað sýnt fram á að hann hafi orðið fyrir fjártjóni vegna málsins. En varðandi miskabótakröfur var talað um að í athugasemdum í frumvarpi til laga, þ.e. skaðabótalaga, komi fram að í skilyrðinu um ólögmæta meingerð felist að um saknæma hegðun þurfi að vera að ræða. Þar vildi Landsréttur meina að ekki væri hægt að segja að sveitarfélög væru með saknæma hegðun, gáleysið þurfi að vera verulegt til að tjónsatvik verði talið ólögmæt meingerð og það að sveitarfélagið veiti ekki þessa þjónustu teljist ekki saknæmt. Þarna tekur Landsréttur býsna vel á þessum skrýtna vanda sem sveitarfélögin eru í, af því að það er lögbundið að það er sveitarfélagið sem á að gera ákveðna hluti. En sveitarfélagið hafði í þessu tilfelli, með þennan einstakling, sagt: Já, við skulum gera við þig samning en við setjum það skilyrði að fyrir liggi samþykki ríkisins fyrir 25% kostnaðarhlutdeild og þangað til við fáum þau 25% getum við ekki gert samninginn. Sem sagt, sveitarfélagið var tilbúið til að greiða sinn kostnaðarþátt en ríkið dró lappirnar. Eins og áður sagði er rétt um helmingur samninga sem lögbundið er að ríkið sé að fjármagna kominn til framkvæmda eftir allan þennan tíma. Sveitarfélögin voru í Landsrétti sögð hafa sjálfstjórn í þeim málum sem löggjafinn hefur falið þeim en ekki síður sjálfstjórn á þeim útgjöldum sem sveitarfélögin fara í. Þess vegna var ekki fallist á að sveitarfélaginu hefði borið að semja við einstaklinginn um NPA-þjónustu eða aðstoð, óháð því hvort ríkið var búið að segja að gerðir yrðu samningar.

Það sem ég vil segja með þessu er að staða hins opinbera í þessum verkefnum er svo ólík. Sveitarfélögin á Íslandi sem við vitum öll að eru vanfjármögnuð, tekjuskipting ríkis og sveitarfélaga er svo ofboðslega skökk, og ríkið setur lög og hendir þessu öllu á sveitarfélögin að framfylgja. Það sem gerist við þetta er að það eru á endanum sveitarfélögin sem uppfylla ekki ákveðnar kröfur og uppfylla ekki ákveðna þjónustu. Hvers vegna? Jú, vegna þess að það fylgir þessu ekki fjármagnið sem á að fylgja, 25%. Ríkið hefur bara treyst sér til þess að fjármagna 90 samninga, ekki 172, eins og er. Það lá alveg ljóst fyrir, þegar fjárlagafrumvarp þessa árs var lagt fram og var afgreitt í desember síðastliðnum, að ekki stæði til að breyta því neitt. Það stendur ekki til.

Þær tölur sem er fjallað um sýna að ekki á að fjölga þessum samningum og í fjármálaáætlun, sem nú er til vinnslu í þinginu, er talað um að auka þurfi framlög við samningana til að standa straum af gildandi samningum, frú forseti. Ekki til að standa straum af því að framfylgja því sem stendur í lögum um hversu marga samninga eigi að vera búið að gera heldur bara að gera það allra minnsta og miklu minna en lögin boða. Það eru alltaf sveitarfélögin sem enda með svarta pétur í höndunum. Það hefur ekki enn, að mér vitandi, verið farið í mál við ríkið vegna þessa en þó kann það að vera. En með þessum dómi Landsréttar, sem í raun sneri við dómi héraðsdóms þar sem tekin var ákvörðun um að sveitarfélagið ætti að borga miskabætur, sýnir Landsréttur ákveðinn skilning á þeirri klemmu sem sveitarfélögin eru í. Ef það kemur ekki fjármagn, hver á þá að borga þetta? Í lögunum er það alveg skýrt að ríkið á að borga ákveðinn hluta af þessum samningum.

Á bak við þessar tölur, þessa 82 samninga sem ekki er verið að gera, eru 82 einstaklingar sem þurfa þessa þjónustu, 82 fjölskyldur, börn og fullorðnir, sem þurfa að annast einstaklingana sem eiga rétt á þjónustunni, vinir og vandamenn. 82 einstaklingar sem búa við miklar skerðingar vegna þess að ríkið er ekki að uppfylla þær skyldur sem lög segja til um. Frú forseti. Þetta eru nefnilega ekki bara tölur á blaði. Þetta er fólk. Þetta er fólk sem býr á Íslandi, ríku Íslandi, í velferðarsamfélaginu, sem fær ekki fullnægjandi þjónustu. Það er ríkisstjórnin sem tekur ákvörðun um að veita ekki þessa þjónustu. Það er ríkisstjórn Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs, Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins sem tekur ákvörðun um að hafa næstum því helmingi of fáa samninga í gangi. Það er þessi ríkisstjórn sem tekur ákvörðun um að fjármagna þetta ekki með fullnægjandi hætti og leyfa fólki, 82 einstaklingum sem eiga að fá samninga, að búa við skert lífskjör.