152. löggjafarþing — 64. fundur,  7. apr. 2022.

aðbúnaður, hollustuhættir og öryggi á vinnustöðum.

590. mál
[21:23]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (P) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna. Mig langar aðeins að fletta upp í henni sem fyrrverandi formanni velferðarnefndar. Ég vil kannski byrja á því að benda á hversu fáránlegt það er, og hvað það lýsir slæmri forgangsröðun, að þetta frumvarp líti dagsins ljós sama dag og bráðabirgðaákvæðið sem það á að koma í staðinn fyrir rennur úr gildi. Ekki er hægt að kenna vinnubrögðum þingsins um það. Ráðherra kom með þetta á deginum sem það þurfti að taka gildi. Enginn máttur Alþingis hefði getað komið í veg fyrir að þessi glufa myndaðist í réttarstöðu fólks sem vinnur við NPA-þjónustu. En þetta er forgangsröðun ríkisstjórnarinnar. Loksins er þetta komið. Við fögnum því og það er gott að þurfa ekki að bíða jafn lengi og við höfum þurft að bíða eftir lögfestingu samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks sem átti að klára í desember 2020, samkvæmt samþykktri ályktun Alþingis. Það er mun skárra að vera bara nokkrum vikum of sein með þetta.

En gott og vel. Hér ræðum við kvótasetningu á mannréttindi út frá því hvað hið opinbera tímir miklum pening. Við erum ekki að tala um að mannréttindi skuli tryggð sama hvað heldur bara eftir því hverju við tímum í það. Hér er talað um 172 samninga í bráðabirgðaákvæði sem á að innleiða á þessu ári. Þar með er innleiðingartímabilinu lokið samkvæmt bráðabirgðaákvæðinu. Hvað tekur þá við? Eru 172 samningar þakið að eilífu? Hvað svo?