aðbúnaður, hollustuhættir og öryggi á vinnustöðum.
Frú forseti. Nú er ég að lesa lögin og þar kemur fram að ákvæði og fyrirkomulag um NPA-aðstoð skuli endurskoða innan þriggja ára frá gildistöku laganna. Þessi lög eru nr. 38/2018, frá 9. maí, þannig að það átti auðvitað að endurskoða þau í síðasta lagi í maí á síðasta ári, þ.e. hvaða samninga ætti að gera og hversu marga. Eins og kom fram í máli mínu áðan erum við í raun á öðru ári í fjölda samninga, eða innan við það. Á fyrsta ári átti að gera 80 samninga. Á öðru ári áttu þeir að verða 103 en þeir eru 90 á öðru ári, þ.e. árið 2019. Ekki er hægt að kenna Covid um þetta, þetta er bara pólitísk ákvörðun. Þá átti að skoða: Er þetta nóg? Þurfum við að hafa fleiri samninga? Erum við með ramma sem miðast við of marga samninga? En í frumvarpinu er líka fjallað um fatlað fólk sem býr á stofnunum eða á herbergjasambýlum, að þeim skuli bjóðast aðrir búsetukostir samkvæmt lögunum og reglum settum samkvæmt þeim. Mér er einnig ókunnugt um að verið sé að framfylgja því.