152. löggjafarþing — 64. fundur,  7. apr. 2022.

aðbúnaður, hollustuhættir og öryggi á vinnustöðum.

590. mál
[21:28]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (P) (andsvar):

Frú forseti. Þetta er einmitt mergurinn málsins. Innleiðingartímabil sem átti að ná yfir fimm ár og átti að ljúka á þessu ári — við erum ekki einu sinni hálfnuð með það miðað við efndir. Bráðabirgðaákvæðið er bara plat, það væri alveg eins hægt að henda því út og segja bara: Fjöldi NPA-samninga fer bara eftir því hvað ríkisstjórnin ákveður á fjárlögum. Við getum alveg eins hætt að láta eins og við séum að eltast við þessar tölur þegar ríkisstjórnin er augljóslega ekki að því. Það var talað um það, í greinargerð með þessu bráðabirgðaákvæði, að við endurskoðunina ætti að meta þetta út frá þjónustuþyngd og þörfum kerfisins en ég held að pælingin hafi alltaf verið að setja einhvers konar þak aftur. Er það ekki kolröng hugsun í þessum málum, þessi kvóti sem á alltaf að setja á þessi mannréttindi?