aðbúnaður, hollustuhættir og öryggi á vinnustöðum.
Frú forseti. Það stendur í bráðabirgðaákvæðinu „allt að“, ekki „að lágmarki“. Mögulega voru það mistök. Nú var ég ekki í hv. velferðarnefnd þegar þetta tiltekna frumvarp var afgreitt. Ég kom inn í nefndina örlítið seinna, haustið 2019. En kannski geta stjórnvöld bara skýlt sér á bak við þetta þannig og sagt: Ef við gerum einn samning þá erum við samt að framfylgja „allt að“. En það er auðvitað merki um ævintýralegt metnaðarleysi í þjónustu við fólk með fatlanir, þjónustu við fólk sem þarf nauðsynlega, í sínu daglega lífi, að fá þessa þjónustu til að geta notið grundvallarmannréttinda, svo að ekki sé meira sagt.