152. löggjafarþing — 64. fundur,  7. apr. 2022.

aðbúnaður, hollustuhættir og öryggi á vinnustöðum.

590. mál
[21:31]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Helgu Völu Helgadóttur fyrir hennar ræðu. Ég hjó eftir því hvernig tekið er á svona málum fyrir dómi. Nú erum við komin með dóm í búsetuskerðingarmálinu. Ég var að lesa í gegnum hann og ég tók eftir því að það vantaði heimild í lög til að fara í þessar skerðingar, sem er auðvitað stórmerkilegt út af fyrir sig; í gegnum allt kerfið kom það vel fram en samt þrjóskuðust menn við.

Einnig var vísað í jafnræðisregluna um bann við mismunun. Ég spyr mig: Í þessu tilfelli erum við kannski með tvo einstaklinga sem báðir hafa jafn mikla þörf fyrir slíka aðstoð. Annar fær þjónustuna en hinn ekki og þá hljótum við að vera að mismuna þeim sem fær ekki þjónustuna. Það hlýtur þá sérstaklega að vera innan þess ramma, meðan ekki er búið að uppfylla þær væntingar sem voru til staðar.

Ég var í nefndinni á sínum tíma og kom að vinnslu þessa máls og enginn efaðist um það eina mínútu að þetta yrði ekki uppfyllt. Ráðherra fagnaði þessu eins og hann væri búinn að ganga frá þessu og fjármagna þetta og allt saman, og skreytti sig með þeim fjöðrum að hann væri búinn að redda þessu máli. Síðan var sett inn þetta ákvæði um að endurskoða ef á þyrfti að halda. Það var ekki einu sinni vissa fyrir því á þessum tíma hvort þörf væri fyrir alla þessa samninga í heild sinni.

Ég spyr: Hvernig horfir þetta við hv. þingmanni sem lögfræðingi? Nú voru þetta lög sem voru samþykkt og ráðherra lýsir því yfir að um tímamótasamninga sé að ræða, og það eigi að standa við þá. Maður áttar sig ekki á því að hægt sé að samþykkja lög hér á Alþingi en komast einhvern veginn hjá því aftur og aftur að fara eftir þeim lögum.