152. löggjafarþing — 64. fundur,  7. apr. 2022.

aðbúnaður, hollustuhættir og öryggi á vinnustöðum.

590. mál
[21:33]
Horfa

Helga Vala Helgadóttir (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Í búsetuskerðingarmálinu var sett reglugerð. Þar tekur ráðherra ákvörðun um, það eru ráðherrar sem setja reglugerðir eins og við vitum, að setja reglugerð, að það megi skerða bætur eða lífeyri til fólks sem hefur búið erlendis einhvern tímann á lífsleiðinni, að framkvæma megi einhvers konar skerðingar hjá því fólki. Niðurstaðan í þessu máli, sem er mikill sigur, kom ekki á óvart af því að umboðsmaður Alþingis hafði komist að þessari niðurstöðu, héraðsdómur hafði komist að þessari niðurstöðu, Landsréttur hafði komist að þessari niðurstöðu og svo loks Hæstiréttur nú í byrjun vikunnar, að það vantaði einfaldlega heimild í lögin fyrir þessu. Allan þennan tíma þrástagast ríkið á því og segir: Jú, við höfum víst rétt fyrir okkur. Þetta skiptir svo miklu máli, það eru svo miklir hagsmunir í húfi að þurfa ekki að borga til baka. Og hvað hefur ríkið verið að gera allan þennan tíma? Þau héldu áfram að vinna eftir gamla laginu og ætluðu svo að byrja að vinda ofan af þessu hægt og rólega einhvern tímann í framtíðinni. Það má auðvitað ekki gerast. Varðandi það mál sem við erum með hér þá féll annar dómur í fyrra sem ég var að reyna að grúska í varðandi notendastýrða persónulega aðstoð þar sem slík aðstoð var talin vera algjör grundvallarréttur. Það var mikill sigur. Ég var að reyna að finna hvort þeim dómi hafi verið áfrýjað til Landsréttar. Þessi féll einhvern tímann síðastliðið vor, 2021. Kannski finn ég það áður en ég kem í seinna andsvar.