aðbúnaður, hollustuhættir og öryggi á vinnustöðum.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Helgu Völu Helgadóttur fyrir svarið. Það furðulegasta í þessu máli er einmitt þrjóska þessarar ríkisstjórnar og einskær brotavilji. Brotaviljinn var svo mikill að Tryggingastofnun dró lappirnar í að leiðrétta þann hluta sem búið var að samþykkja. Þeir skildu sérstöku uppbótina eftir en hitt voru þeir búnir að samþykkja, en samt drógu þeir lappirnar, samt gerðu þeir fáránlegar kröfur. Samt fékk ég svar um að það væri töluverður hópur sem þeir ætluðu sér ekki að gera neitt fyrir. Ég velti því fyrir mér hvers vegna í ósköpunum þessi ríkisstjórn telur sig einmitt þurfa að brjóta á réttindum þessa fólks sem síst skyldi. Maður fer að hugsa: Hvernig í ósköpunum er hægt að gera svona hluti og það án þess að blikna? Ég veit ekki hvernig þeir ætla að réttlæta það, þetta er óskiljanlegt fyrirbrigði, það er óskiljanlegt að menn skuli hegða sér svona.