aðbúnaður, hollustuhættir og öryggi á vinnustöðum.
Frú forseti. Já, hvernig er hægt að standa svona illa að málum? Ég held að það hljóti að vera stóra spurningin á Alþingi þessa dagana og þessi misserin. Það er nefnilega ekki bara í þessu máli, það virðist vera í öllum þeim málum sem ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur og félaga tekur að sér. Það var í lok mars á síðasta ári sem dómur féll í Héraðsdómi Reykjavíkur sem staðfesti að notendastýrð persónuleg aðstoð væri lögbundinn réttur fatlaðs fólks og ólöglegt væri að setja kvóta á þau mannréttindi. Þetta er mjög áhugavert mál en aftur segi ég: Ég man ekki til þess að hafa séð niðurstöðu Landsréttar í því en það hlýtur eiginlega að vera að málinu hafi verið áfrýjað, ég bara finn það ekki. Það er tekið á mörgum mjög athyglisverðum málum þarna af því að það eru mjög margir einstaklingar, eins og hefur komið fram hér í dag, sem eru að vonast til þess að fá þessa þjónustu og eru að bíða eftir þessari þjónustu. Það hefur því miður ekki gengið af því að ekki er boðið upp á nema svo og svo marga samninga af hálfu ríkisins. Þá kemur auðvitað þetta með jafnræðisregluna, hver fær og hver ekki.