aðbúnaður, hollustuhættir og öryggi á vinnustöðum.
Frú forseti. Ég hlýddi á ágætar ræður um þetta góða mál en varð dálítið hugsi þegar ég hlustaði á hv. þm. Helgu Völu Helgadóttur lýsa þessum dómi Landsréttar, af því að ég hef verið svo mikið með hugann við það hvað ákveðinn hópur í samfélaginu þarf stöðugt að sækja réttindi sín til dómstólanna í stað þess að sækja hann til stjórnmálanna. Ég lagði fram fyrirspurn fyrir ekki svo löngu til hæstv. félagsmálaráðherra varðandi það dómsmál sem var í gangi í Hæstarétti þar sem ríkið tapaði í þriðja sinn máli gegn Öryrkjabandalaginu. Ásmundur Einar Daðason, þáverandi félags- og barnamálaráðherra, hafði fjallað um þetta mál á ríkisstjórnarfundi síðastliðið haust. Ég hvet ykkur til að skoða svörin við þessari fyrirspurn minni. Ég batt vonir við að skipti í ráðherrastól gætu mögulega orðið til þess að frá yrði horfið en það var aldeilis ekki. Nýr félagsmálaráðherra, að þessu sinni úr Vinstri grænum, lýsti því yfir í skriflegu svari til mín að hann gerði engar athugasemdir við þessi málaferli. Þá finnst mér það lýsa svo miklum vilja þegar haft er í huga að ríkið er þarna að berjast fyrir, með sérstöku leyfi sem þarf að sækja um til að fara með þetta í Hæstarétt, skerðingum gagnvart þeim hópi öryrkja sem verst eru staddir, sem úr minnstu hafa að moða. Mér finnst þetta lýsa svo brogaðri velferðarpólitík að ég hef átt erfitt með það.
Spurningin eða sjónarmiðið er sem sagt hvað það segir þegar þeir sem verst hafa það í samfélaginu eiga ekki aðeins erfitt uppdráttar gagnvart ríkjandi valdhöfum heldur er barningurinn slíkur að réttindin fást ekki fram fyrr en í gegnum dómstólaleiðina.