aðbúnaður, hollustuhættir og öryggi á vinnustöðum.
Frú forseti. Það hefur nú aldeilis verið fjallað um þetta af hálfu umboðsmanns Alþingis sem er nú betri en enginn þegar kemur að því að hafa eftirlit með réttindum borgaranna og að ekki sé á þeim troðið, gríðarlega mikilvægt embætti. Mér er mjög minnisstæð sú klausa og þau orð sem umboðsmaður Alþingis sendi frá sér hér um árið þegar lögmenn hins opinbera — við getum í tilfelli sveitarfélaga talað um borgarlögmann eða bæjarlögmann en annars ríkislögmann — reiddu svo hátt til höggs að þeir gerðu allt sem þeir gátu til þess að vinna málin. Umboðsmaður Alþingis sagði að svona mætti ekki haga málum af því að þarna væri um að ræða borgara sem væri að keppa við ofurefli sitt. Þar segir hann í raun, við ríkislögmann í þessu tilviki, að hann verði að einhverju leyti að hegða sér eins og ríkissaksóknari, að það verði að vera ákveðin hlutlægnisregla. Þegar svona ofboðslega kröftugt og valdamikið embætti er að taka til varnar, eða við skulum segja til sóknar, þá verði að horfa á þetta aðeins með þeim gleraugum. Þarna er ríkisvald, eða sveitarfélag, að berjast af öllu sínu afli (Forseti hringir.) við borgarann um réttindi borgarans.