aðbúnaður, hollustuhættir og öryggi á vinnustöðum.
Frú forseti. Það er kannski akkúrat þetta sem ég er með í huga. Kannski að hv. þingmaður sjái það einmitt sömu augum, hafandi reynslu af því að vera í dómsalnum. Þrátt fyrir að málið sé í nafni Tryggingastofnunar hefur það náð því stigi að það er til umræðu á ríkisstjórnarfundi. Þarna erum við að tala um að það er búið að slá því föstu hjá umboðsmanni Alþingis, í héraði, í Landsrétti að skerðing sérstakrar uppbótar örorkulífeyrisþega sé ólögmæt. Afleiðingin er sú að á annað þúsund einstaklinga hafa til lengri tíma ekki fengið þessa lágmarksaðstoð til framfærslu sem löggjafinn hafði þó ákveðið að þeir skyldu njóta. Þannig að þessi punktur, að fara fram með þessu afli — og ég tók eftir því að í aðdraganda síðustu kosninga biðlaði formaður Öryrkjabandalagsins til þáverandi hæstv. félagsmálaráðherra, Ásmundar Einars Daðasonar, (Forseti hringir.) um að staldra nú við en það náði bara ekki eyrum og náði ekki (Forseti hringir.) athygli af því að þetta er stórpólitískt mál.