152. löggjafarþing — 64. fundur,  7. apr. 2022.

aðbúnaður, hollustuhættir og öryggi á vinnustöðum.

590. mál
[21:44]
Horfa

Helga Vala Helgadóttir (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir seinna andsvar. Þetta er alveg hárrétt. Það er nefnilega stórpólitísk ákvörðun að beita ríkisvaldinu með þessum hætti. Það er stór ákvörðun. Vissulega eru miklir hagsmunir undir fyrir ríkissjóð en einhvers staðar verður maður að láta gott heita þegar tveir dómstólar og umboðsmaður Alþingis hafa talað kristaltært eins og er í þessu máli. Hversu margir einstaklingar veigra sér við að leita réttar síns? Hversu margir einstaklingar láta sig ekki dreyma um að labba inn á lögmannsstofu af því að þeir vita að þeir hafa engin efni á því? Hversu margir einstaklingar í íslensku samfélagi — það bara hvarflar ekki að þeim að fara og leita réttar síns gagnvart hinu (Forseti hringir.) ofursterka ríkisvaldi. Hugsum aðeins um það líka.