aðbúnaður, hollustuhættir og öryggi á vinnustöðum.
Frú forseti. Þetta mál, frumvarp til laga um breytingu á lögum um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum, sem snýst um vinnutíma starfsmanna sem veita notendastýrða persónulega aðstoð, hefur fylgt mér frá því að ég hóf störf hér á þingi haustið 2016, þ.e. mál um notendastýrða persónulega þjónustu, svokallað NPA, og hefur það þó því miður fylgt fólki sem þarf þá þjónustu töluvert lengur. Þetta var eitt þessara mála sem ég var ásamt fleiri þingmönnum að vinna í veturinn 2016 til 2017 og var því miður enn í meðferð sumarið 2017 og þar með óklárað þegar ríkisstjórnin féll um haustið. Ég var að rifja það upp núna, þegar ég var að undirbúa mig undir þessa umræðu, að ég var ein af þeim, og þingmenn Pírata voru líka í þeim hópi, ef ég man rétt, sem töldu að málið væri nægilega vel á veg komið í vinnu nefndar til þess að hægt hefði verið að klára það á þeim tíma. En það var ekki gert og þá, 2016, voru dæmi um að fólk með fötlun hafði beðið í fimm ár eftir því að geta sótt um slíka aðstoð, sem gerir því einfaldlega kleift að lifa lífi sínu samkvæmt eigin óskum og eigin vilja í ríkari mæli en áður. Þá þegar hafði það tafist í nokkur misseri af hálfu þingsins að klára þetta mál.
Þetta hafa verið fínar ræður sem hafa verið haldnar hér. Loks er verið að ganga frá málum sem varða aðbúnað starfsfólks og það er mjög jákvætt að sjá það klárað hér þó að ég taki nú undir hvað varðar undrun á því sleifarlagi að vera að taka þetta til umræðu hér í þinginu þegar fresturinn er raunverulega fallinn úr gildi. En ég ætla kannski að gera það sama og margir sem hafa tekið hér til máls, ég ætla að nota tækifærið og hnykkja á því sem ég held að við séum flest undrandi og döpur yfir, þ.e. yfir því að málinu skuli ekki hafa undið hraðar fram og að við skulum vera í þessari sjálfheldu á milli ríkis og sveitarfélaga í tengslum við fjármögnunina.
Ég held að það sé engin spurning að fjölgun samninga um notendastýrða persónulega aðstoð er eitt stærsta einstaka frelsismálið sem við höfum í dag, frelsismál sem varðar einfaldlega félagsleg réttindi, félagslegt frelsi, frelsi til að lifa lífi sínu. Við eigum það til að tala mikið héðan úr ræðustól Alþingis um frelsi, misjafnlega mikið, vissulega. En frelsið kemur í svo mörgum myndum og grundvallarfrelsismálið hlýtur að vera það að okkur sé frjálst að haga lífi okkar, a.m.k. daglegum athöfnum, eins og við kjósum, þ.e. að vera a.m.k. jafn frjáls og þeir sem lifa í samfélaginu með okkur. Það er nákvæmlega það sem þessi notendastýrða persónulega aðstoð gerir fólki með fötlun kleift að gera. Við höfum verið að nota tíma þingsins undanfarin ár til að framlengja fresti, til að finna út úr því hvernig við viljum haga þessu fyrirkomulagi með vinnutíma starfsfólks, og nú er komin ákveðin niðurstaða í það mál.
Ég fór svolítið í söguna, þegar ég var að undirbúa mig hér, og skoðaði málin, fór alveg til baka að upphafi þingferils míns en staldraði svo við umræðuna um fjárlög við síðustu árslok eins og margir hafa gert og rætt hér. Þar kristallast einmitt svo vel í hvaða öngstræti þessi störukeppni ríkis og sveitarfélaga er komin og ég held að við séum mörg sammála um að fáir fái að finna eins mikið fyrir því og þeir einstaklingar sem eiga lögum samkvæmt að vera með samninga um þessa mikilvægu þjónustu, en hún er einfaldlega ekki fjármögnuð. Þessir samningar, um notendastýrða persónulega aðstoð, byggja einfaldlega á lögum um þjónustu við fatlaða með langvarandi stuðningsþarfir og þeir samningar eru hjá sveitarfélögunum en fjármagnið kemur að miklu leyti frá ríkinu.
Það hefur verið farið yfir það hér að í lögum er kveðið á um að ríkið eigi að greiða með ákveðið mörgum samningum á hverju ári, þetta voru 80 samningar árið 2018, 150 samningar á síðasta ári, en 172 samningar á þessu ári. Fjárheimildin sem rætt hefur verið um gerir að verkum að hægt er að uppfylla 93 af þeim samningum. Þarna eru því tæplega 80 einstaklingar sem eiga lögum samkvæmt að fá þjónustu sem þeir fá þó ekki vegna forgangsröðunar okkar í fjárlögum. Það verður að segjast eins og er að það er dæmi um míkrófjármögnun að þarna skuli línan vera dregin í sandinn. Það fer einfaldlega ekki saman lagabókstafur sem við höfum samþykkt og svo fjárheimild sem þarf að samþykkja til að uppfylla þau lög. Það er svo sem ekki nýtt. Lögin eru hins vegar mjög skýr með þetta. Framkvæmdin er svo sú að þingið samþykkir fjárheimild til að fjármagna þennan fjölda samninga, eða öllu heldur fjárheimild sem dekkar þann kostnað sem þingið fær upplýsingar um að þurfi til. Síðan kemur í ljós að það dugar ekki til og þar erum við strönduð.
Það eru biðlistar. Það er eftirspurn. Sveitarfélögin hafa að ákveðnu leyti unnið undirbúningsvinnu en fá ekki mótframlag frá ríkinu til að geta fjármagnað þetta allt og þar með samninginn í heild. Þau sjá um framkvæmdina og eins og skýrt hefur komið fram hér er það þar með þeirra að verjast fyrir dómi af því að það eru, eins og fram hefur komið, einstaklingar sem vilja láta reyna á það fyrir dómstólum ef þeir fá ekki þá þjónustu sem þeim ber samkvæmt lögum. Það er eðlilegt, ég held að hver sjái það í hendi sinni.
Mig langar aðeins í þessu sambandi að vísa í svör við fyrirspurn sem ég lagði fyrir þáverandi félags- og barnamálaráðherra 2021, um innleiðingu á þessum samningum. Þar spurði ég m.a.: Hvernig hyggst ráðherra mæta einstaklingum sem synjað er um samning á grundvelli skorts á fjármagni? Svar ráðherra var þetta: Það er á ábyrgð sveitarfélaga að forgangsraða umsækjendum um þjónustu á grundvelli þeirra reglna sem þau setja sér. Með öðrum orðum: Svarti-Pétur er hjá sveitarfélögunum samkvæmt þessu. Þau þurfa á þessu ári, 2022, að velja hverjir af þessum 172 einstaklingum ættu að fá samning, hvaða 79 einstaklingar eru skildir eftir. Þetta er svolítið málið.
Ég talaði áðan um að mér þætti þetta vera einhvers konar míkróráðstöfun í fjármögnun. Það er oft þannig, við þekkjum það, að það er einhver lögbundin þjónusta sem ríkið vill veita en fjármagnið dugar ekki til. Það kemur í ljós einhvern tímann þegar lagt er af stað og það stendur ekkert alltaf í okkur hér á þingi að grípa til úrræða þar. Ég rifja upp hið ágæta verkefni Allir vinna, sem var framlengt með tilheyrandi kostnaði og hygg ég nú að þörfin þar, hafi komið í ljós, hafi ekki verið nálægt því hin sama og þörf þeirra einstaklinga sem nú bíða eftir þeirri lögbundnu þjónustu sem þeir eiga rétt á, svona til að setja hlutina í eitthvert samhengi. Alþingi er ekkert ráðalaust þegar svona aðstæður koma upp. Hér er jú fjárveitingavaldið. Komi í ljós að fjárveitingin er ekki nóg þá getum við gripið til okkar ráða. Þetta snýst um forgangsröðunina.
En þegar það er sagt þá er birtingarmyndin á þessari störukeppni milli ríkis og sveitarfélaga í svona málaflokkum svo knýjandi að við hljótum að leggja töluvert á okkur hér til að koma í veg fyrir að slík staða komi upp. Þegar við setjum lög um að veita einhverja þjónustu, neglum það jafnvel inn í þau lög hversu margir einstaklingar eigi að njóta þjónustunnar frá ári til árs, hljótum við að standa við það en ekki velta boltanum annað. Samþykkjum þá frekar færri lög, hendum færri boltum upp, ef það er málið, ef við ráðum ekki við að forgangsraða öðruvísi. Ég væri hins vegar mjög til í að fá að taka heiðarlegar samræður við ríkisstjórnina um öðruvísi forgangsröðun en þau hafa unnið samkvæmt. Það er önnur saga, það er líklegast útséð um að það takist.
Það er jákvætt að við sjáum þetta mál í þessum farvegi, að við séum að ganga frá þessari útfærslu sem lýtur að vinnutíma starfsfólks af því það hefur sannarlega reynst flókið og það með réttu. Það þarf líka að huga að réttindum starfsfólks og tryggja að starfsumhverfið sé þannig að fólk fáist til þeirra starfa. Þetta er ekki einfalt. En það hefur skapað tækifæri og ég fagna því að þingheimur, a.m.k. sá góði hluti þingheims sem stjórnarandstöðuþingmenn fylla, hefur viljað ræða þessi mikilvægu mál. Okkur ber skylda til að tryggja frelsi þeirra einstaklinga sem reiða sig á þessa þjónustu samkvæmt lögum. Það er lykilatriði. Það er okkar hlutverk.