aðbúnaður, hollustuhættir og öryggi á vinnustöðum.
Frú forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þingmanni fyrir upprifjun á sameiginlegri ævisögu okkar hér á þingi vegna þess að við höfum fylgt þessum NPA-lögum frá því að þau voru bara ogguponsu frumvarp árið 2016, við upphaf okkar þingferils. Það að málið sé að koma fram núna, sama dag og bráðabirgðaákvæði sem það á að koma í staðinn fyrir rennur úr gildi, er svo lýsandi fyrir þessa sögu. Það hefur öllu verið frestað, öllu ýtt á undan kerfinu. Það hefur ekkert verið gert tímanlega eða með þeim metnaði sem þessi hópur á skilið.
Mig langar að nefna eitt sem var dálítið mikið rætt um í velferðarnefnd þegar við sátum þar saman og unnum úr frumvarpinu sem síðan varð að lögum 2018. Það var t.d. mikið rætt um kostnaðarhlutdeild milli ríkis og sveitarfélaga. 75% ríki, 25% sveitarfélög. Sveitarfélögin vildu fá … (Gripið fram í.) — Öfugt? Já, einmitt sveitarfélögin eru með 75% og þau lögðu áherslu á að ríkið tæki 5 prósentustigum meira, að við myndum færa þar á milli. Nefndin sagði: Við skiljum þetta, við viljum fá að sjá hvernig þetta reynist og svo á hvort eð er að fara að endurskoða lögin eftir þrjú ár. Við skulum bara setja þetta inn í þá púllíu þar sem m.a. verður endurskoðað hvort breyta þurfi viðmiðum um þjónustuþyngd og allt sem undir lögin heyrir. Sá frestur rann út þremur árum síðar. Það var á síðasta ári. (Forseti hringir.) Endurskoðun á kostnaðarhlutdeild milli ríkis og sveitarfélaga er komin ár yfir þann frest sem við gáfum þeim til að endurskoða þetta. Hvað segir það um forgangsröðun í þessum málaflokki?