aðbúnaður, hollustuhættir og öryggi á vinnustöðum.
Herra forseti. Já, þetta er áhugavert. Ég þakka hv. þm. Andrési Inga Jónssyni fyrir þetta andsvar og þessa upprifjun. Þetta segir nefnilega ekki góða sögu um forgangsröðunina en þetta segir líka svolítið sérstaka sögu um þá flækju sem þetta mál hefur verið vafið inn í undanfarin ár. Ég fór raunverulega og skoðaði söguna og þetta var einfaldlega ekki eitt af því sem stökk á mig í þeirri sögu heldur alls konar hliðarspor og útúrdúrar. Ég fékk á tilfinninguna að af hálfu þingsins, meiri hlutans sem ræður gjarnan för hér, þvert á það sem sumir vilja vera láta, hefði þetta einhvern veginn þótt flóknara mál en t.d. endurskoðun á fjarskiptalögum, svona miðað við umræður í nefndum og annað slíkt. En sem sagt grínlaust, sagan hefur einhvern veginn verið sú að það hafa komið bætur og púsl og plástrar og það í svo ríkum mæli að smáatriði eins og útrunnir frestir renna bara hjá án þess að gripið hafi verið til aðgerða. Ég mundi ekki eftir þessu, ég segi það eins og er. Þetta er hryggilegt af því að hægt hefði verið að vinna þetta góða, mikilvæga og jákvæða mál af svo mikilli reisn. Það hefði svo vel verið hægt að klára þetta og þetta er svo gott mál en það hefur farið í þennan búning. Ég heyri það hér að þessi skipting — nú átta ég mig ekki á því og hér er svo sem fólk sem er betur til þess fallið að segja til um það hvar þetta er nákvæmlega statt í ferlinu. En auðvitað er lykilatriði að fá þetta á hreint og hætta, eins og ég sagði áðan, þessari störukeppni um þetta mál (Forseti hringir.) og fara frekar að einblína á að leita leiða til að fjölga þessum samningum, af því að það er það sem stefnir í.