aðbúnaður, hollustuhættir og öryggi á vinnustöðum.
Herra forseti. Það er kannski rétt að rifja það líka upp að bráðabirgðaákvæðið breyttist í meðförum Alþingis þannig að í stað þess að endurskoðun ætti að fara fram tveimur árum eftir gildistöku gaf þingið ráðuneytinu ár í viðbót. Við lengdum frestinn upp í þrjú ár og það hangir auðvitað meira á þessu en kostnaðarhlutdeildin. Svo ég lesi bara upp úr greinargerð með frumvarpinu, af því að það er nú textinn sem kemur frá ráðuneytinu, með leyfi:
„Við endurskoðun fyrirkomulagsins þarf einnig að endurskoða viðmiðin um þjónustuþyngd og hvernig reynslan hefur verið af notendasamningum fyrir þá sem þurfa minni þjónustu.“
Það sem ég les út úr þessum orðum, gerði á þeim tíma líka, var: Við ætlum að byrja á því að prufukeyra þetta NPA-kerfi fyrir fólkið í mestri þörf fyrir mesta þjónustu. Svo þegar komin er reynsla á það þá ætlum við að sjá hvort við getum innleitt þetta fyrir fólk sem þarf minni þjónustu með minni þjónustuþyngd. Þannig að ég hefði haldið að allar breytingar við endurskoðun á þessu ákvæði ættu að leiða til þess að víkka það töluvert út, vegna þess að NPA-þjónustan svínvirkar, ekki bara fyrir fólk sem þarf sólarhringsþjónustu og fullt starfslið heldur líka fólk sem þarf afmarkaðri viðráðanlegri þjónustu. Og við erum komin rúmu ári fram yfir frest með það. Þetta á ekkert að koma ráðuneytinu á óvart vegna þess að það setti sjálft reglugerð um framkvæmd þessara laga þar sem þessi kostnaðarhlutdeild er í 15. gr. og skiptist milli sveitarfélags, 75%, og ríkis, 25%. Svo stendur í bráðabirgðaákvæði í reglugerð sem þau semja sjálf: Kostnaðarhlutdeildin verður tekin til endurskoðunar innan þriggja ára frá gildistöku þessarar reglugerðar. Hún tók gildi 27. desember 2018. (Forseti hringir.) Sá frestur, sem ráðuneytið setti sjálfu sér án atbeina Alþingis, rann út núna fyrir áramót.