152. löggjafarþing — 64. fundur,  7. apr. 2022.

aðbúnaður, hollustuhættir og öryggi á vinnustöðum.

590. mál
[22:05]
Horfa

Hanna Katrín Friðriksson (V) (andsvar):

Forseti. Þetta er mjög áhugavert og ég ætla nú eiginlega að fá að kasta boltanum til baka. Ég var ekki hér þegar ráðherra flutti ræðu sína um málið, veit ekki hvort hann fékk þessa spurningu til sín þá og hvernig málið er statt, en auðvitað er þetta eitt af því sem ber að flagga og við þurfum heldur betur að taka til hendinni. En mér finnst það svo áhugavert, sem hv. þingmaður kom inn á, og ég er sammála, að það hafi sýnt sig að þetta svínvirkar, svo að ég noti sömu orð og hv. þingmaður. Það er einfaldlega þannig. Það að sníða svona persónubundna þjónustu að fólki sem ekki hefur alveg jafn heildstæða eða mikla þörf fyrir þjónustuna, á afmarkaðri sviðum — það er svo auðvelt að sjá fyrir sér að slík þjónusta væri útvíkkuð verulega mikið og þá erum við bara komin með allt annan brag á frelsi fólks, svo ég noti þetta orð, sem á við alls konar hamlanir að stríða, ekki endilega vegna fötlunar, það geta verið tilfallandi meiðsli, það getur verið aldur, það getur verið svo margt. Þessi nálgun er svo mikið gull og það er svo mikil synd að við séum að spara aurinn þegar kemur að því að fjármagna það gull sem þessi þjónusta er fyrir fólk sem raunverulega þarf á henni að halda. En þessi endurskoðun þarf að eiga sér stað, það liggur alveg fyrir.