aðbúnaður, hollustuhættir og öryggi á vinnustöðum.
Forseti. Mig langar fyrst að þakka hv. þm. Hönnu Katrínu Friðriksson fyrir að koma með frelsi inn í þessa umræðu, það er nákvæmlega það sem er undir í þessu máli, NPA, og stuðningur við fólk með einhvers konar fötlun eða skerðingu. Mér finnst það svo merkilegt að frelsisflokkurinn, sem liggur við að sé búinn a eigna sér frelsi sem „trade mark“, skuli ekki sjá þetta, hafi sett kvóta á þetta og sé ekki einu sinni að uppfylla kvótann sem hann setti á þessi mannréttindi, á þetta frelsi sem við erum að veita fólki til að lifa sjálfstæðu lífi í staðinn fyrir í raun að læsa það inni í stofnunum með mjög takmarkaða getu til að taka þátt í samfélaginu sem þau eiga, nota bene, fullan rétt til — að ógleymdum hinum flokkunum í ríkisstjórn sem segjast standa fyrir mannréttindi og svo er þarna eitthvert miðjumoð.
Ég kem upp til að ræða það að við erum búin að fullgilda samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks og hluti af þeim samningi, og mér fannst einmitt áhugavert að heyra samskiptin á milli hv. þingmanns og hv. þm. Andrésar Inga Jónssonar, gerir ráð fyrir að fólk sem er með skerta getu til ákvarðanatöku, m.a. vegna einhvers konar þroskafrávika eða þá vegna einhvers konar geðrænna áskorana, eigi rétt á að fá persónulegan talsmann til að styðja það við ákvarðanatöku. Í staðinn fyrir að frelsissvipta fólk, nauðungarvista eða taka af því réttinn til að taka ákvarðanir þá eigi að veita því stuðning til ákvarðanatöku. Þetta er eitthvað sem ég held að NPA-kerfið ætti að stefna í átt að vegna þess að við erum ekki að uppfylla þessa kröfu samningsins. (Forseti hringir.) Við erum enn þá á fullu að nauðungarvista, svipta fólk frelsi, svipta það ákvörðunarréttinum (Forseti hringir.) í fullkomnu ósamræmi við samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Ég spyr hv. þingmann: Er það ekki bara þannig (Forseti hringir.) að réttindi fatlaðs fólks hafa engan forgang á Íslandi, frelsi þeirra alveg sérstaklega ekki?