152. löggjafarþing — 64. fundur,  7. apr. 2022.

aðbúnaður, hollustuhættir og öryggi á vinnustöðum.

590. mál
[22:10]
Horfa

Hanna Katrín Friðriksson (V) (andsvar):

Herra forseti. Þetta er mjög áhugaverð nálgun. Ég þekki lítillega þetta með að uppfylla þessi skilyrði samningsins, þ.e. þegar kemur að frelsi fólks sem býr við þessar andlegu skerðingar. Þegar við komum skikki á það þá er það ekki annað en önnur útgáfa af þessari notendastýrðu persónulegu aðstoð. Það er kannski of djúpt í árinni tekið að segja að enginn áhugi sé á því að veita fólki með fötlun, sem þarf þessa tegund aðstoðar, frelsi en það er sannarlega ekki ofarlega í forgangsröðinni. Það sést bara á þessari þrautagöngu með NPA-samningana, sem við erum þó að vinna með. Það er ekki bara tímalengdin og ekki bara þessi togstreita um fjármögnunina. Þegar maður rekur söguna sér maður þessa hringi, þetta velkist inn í fastanefndinni, velferðarnefndinni, og tilfinningin er næstum því sú að hvert tækifæri sem gafst hafi verið tekið til að stíga á bremsuna. Það er eiginlega þannig sem tilfinningin er. Ég er ekki að segja að það þurfi ekki að vanda sig og ég er ekki að segja að þetta sé einfalt. Mér finnst t.d. þessi tegund sem hv. þingmaður talar hér um við notendastýrða aðstoð, við þessum andlegu skerðingum, að ákveðnu leyti flóknari. Hún er flóknari en það er kannski auðveldara að koma henni á laggirnar þegar við erum komin með reynsluna. En lykilatriðið er, eins og hv. þingmaður kemur réttilega inn á: Ef við ætlum að gera þetta, ef við ætlum að tryggja frelsi þessa fólks þarf þetta að fara í skýrari forgang hjá okkur (Forseti hringir.) og það þurfa allir að koma með, líka þau sem sitja einhvers staðar annars staðar en í sætinu sínu hér inni í þingsal núna.