aðbúnaður, hollustuhættir og öryggi á vinnustöðum.
Virðulegi forseti. „Justice delayed is justice denied“, með leyfi forseta, eða réttlæti sem er frestað er réttlæti sem er hafnað. Mér finnst þetta almennt vera viðmótið sem mætir fötluðu fólki í íslensku réttarkerfi. NPA-samningarnir, það er settur kvóti á þá og það er ekki einu sinni fyllt upp í þann kvóta. Fólk er jafnvel fast á elliheimili í stað þess að geta lifað sjálfstæðu lífi eins og lög gera ráð fyrir og eins og skuldbindingar okkar gera ráð fyrir, eins og fólk á rétt á, að lifa frjálsu lífi í samfélagi manna. Við erum að tala um að afstofnanavæða fötlun. Þetta er umræða sem hefur verið í gangi mjög lengi en við erum ekki einu sinni að útvega þann kvóta sem þó er búið að setja þegar kemur að notendastýrðri persónulegri aðstoð. Það er náttúrlega ótrúlegt og það er alltaf verið að ýta þessu á undan sér. Ég minnist á stuðning við ákvarðanatöku vegna þess að það stendur mér nærri. Það er eitthvað sem hefur legið þungt á mér, hvernig við komum fram við fólk með geðrænar áskoranir á Íslandi. Þau njóta annars flokks réttinda í allri meðferð í sínum málum. Þau geta ekki einu sinni farið fram á það að fá nýjan lögráðamann ef lögráðamaður þeirra misnotar stöðu sína gagnvart þeim einhvern veginn eða bara kemur illa fram við þau eða er dóni eða leiðinlegur eð hvað sem það er. Það er ekkert í lögunum sem gerir ráð fyrir að þú getir beðið um nýjan lögráðamann. Það er allt í lögunum sem gerir ráð fyrir því að ef þú býrð við einhvers konar fötlun njótir þú ekki sama frelsis og aðrir, njótir ekki sömu réttinda og aðrir, ekki sama aðgengis að samfélaginu og ekki málsmeðferðarréttinda á við þá sem eru ekki fatlaðir. Þetta á ekki bara við um fólk með geðrænar áskoranir, þetta á líka við um fólk með almenna fötlun. (Forseti hringir.) Ég er ekki segja að fólk sé endilega á móti því að veita fólki með fötlun mannréttindi (Forseti hringir.) en forgangsröðunin, hægagangurinn, sýnir bara (Forseti hringir.) að þeim er sama. Þau leggja ekkert á sig til þess að gera það að veruleika (Forseti hringir.) og það er það sama og að neita fólki um réttindi.