aðbúnaður, hollustuhættir og öryggi á vinnustöðum.
Forseti. Já, það er í sjálfu sér ekki miklu við þetta að bæta, ég er einfaldlega hjartanlega sammála. Mig langar þó að því sögðu að bæta smá við sem er, án þess að ég vilji á nokkurn hátt taka sjónarhornið frá þeim einstaklingum sjálfum sem eiga rétt á þessari þjónustu, þurfa hana og eru í einhverjum tilfellum, allt of mörgum, að bíða eftir henni, að það eru fleiri í þessu samfélagi sem málið varðar. Það er hægt að telja til fjölskyldu viðkomandi einstaklinga. Það er hægt að telja til vini viðkomandi einstaklinga og síðan er mjög einfaldlega hægt að útvíkka þetta yfir á samfélagið allt vegna þess að það er einfaldlega þannig að við flest viljum búa í samfélagi þar sem vel er búið að öllum. Við teljum þannig samfélag betra. Við teljum okkur ríkari einstaklinga búandi í þannig samfélagi. Við njótum góðs af því. Við viljum ala börnin okkar upp í þannig samfélagi. Við viljum ganga um með börnin okkar og geta bent á þessi dæmi um samfélagið sem við búum í. Við mátum okkur inn í það samfélag sem við búum í og viljum vera stolt af því. Við erum öll ríkari ef við tryggjum þessum einstaklingum það frelsi sem við sjálf búum við. Þetta er ekkert flókið og þetta er ekkert flóknara en það. Þetta kostar einhvern pening, við fáum það margfalt til baka. Það er fullt sem kostar pening og við fáum ekkert sérlega mikið út úr því og dæmin sýna það. Þetta snýst um forgangsröðun og þetta snýst um að klára málið. Ég held að þetta sé eins og svo oft áður, viljinn er ekki allt sem þarf en ef hann er til staðar þá bara klárum við þetta og líka fyrir þá sem búa við þær andlegu raskanir sem þingmaður hefur tekið til hér og er klárlega næsta verkefni þegar við klárum þetta.