152. löggjafarþing — 64. fundur,  7. apr. 2022.

aðbúnaður, hollustuhættir og öryggi á vinnustöðum.

590. mál
[22:17]
Horfa

Guðbrandur Einarsson (V):

Virðulegur forseti. Við ræðum frumvarp til laga um breytingu á lögum um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum, um vinnutíma starfsmanna sem veita notendastýrða persónulega aðstoð. Umræðan hér í dag hefur gefið tilefni til þess að ræða þennan málaflokk út fyrir þetta sérstaka frumvarp sem snýr bara að þeim starfsmönnum sem vinna innan málaflokksins. Það er hægt að segja að þessi málaflokkur sé í skötulíki og því eðlilegt að hann sé ræddur af fullri einurð og alvöru og við skoðum hann heildrænt. Hér hefur ýmislegt fróðlegt og forvitnilegt verið sagt og það er hægt að fjalla um þetta á marga vegu, bæði réttindi þeirra sem ættu að fá notið þessa frábæra úrræðis, það er hægt að ræða samskipti ríkis og sveitarfélaga hvað þetta varðar og það er hægt að ræða tekjuskiptinguna á milli ríkis og sveitarfélaga. Það er líka hægt að ræða bara hvernig fjármunir eru veittir í þjónustu við landsmenn og mig langar að byrja á NPA-samningunum sjálfum. Hv. þm. Þórhildur Sunna Ævarsdóttur nefndi hér frelsið sem er svo mikilvægt í lífi hvers og eins. Rifjum aðeins upp hvað NPA þýðir. Þetta er notendastýrð persónuleg aðstoð og samkvæmt skilgreiningu erum við að ræða um þjónustuform sem byggir á hugmyndafræði um sjálfstætt líf og þessi hugmyndafræði á að gera fötluðu fólki kleift að ráða hvar það býr og með hverjum það býr og að fatlað fólk stýri því líka hvernig aðstoðin er skipulögð, hvaða aðstoð er veitt, hvenær hún fer fram og hvar hún fer fram og hver veitir hana. Markmiðið með þessu er að fatlaðir einstaklingar geti lifað sínu eigin lífi og haft sömu möguleika og ófatlaðir einstaklingar. Tilgangurinn er auðvitað að þessi hópur hafi stjórn á sínu eigin lífi eins og við hin. Það er markmiðið með slíkum samningum. En þessir samningar hafa verið á forræði sveitarfélaganna. Þarna eru tvö stjórnsýslustig sem eru að greiða fyrir þessa þjónustu, fjármagna þessa þjónustu og einhvern veginn verður alltaf reiptog á milli ríkis og sveitarfélaga þegar bæði þessi stjórnsýslustig veita einhverja þjónustu. Það kemur bersýnilega fram í NPA-samningunum. Ég vil líka nefna félagslega aðstoð sveitarfélaga eða heimahjúkrun. Þar er endalaust reiptog á milli sveitarfélaga og ríkis um hver eigi að veita hvað af því að hjúkrun er jú veitt af ríki en félagsleg heimaþjónusta af sveitarfélagi. Það sem vekur athygli mína í það minnsta er að þarna skuli vera, eins og hv. þm. Andrés Ingi sagði áðan og gerði það að verkum að ég hrökk eiginlega bara í kút, um að ræða kvótasetningu á mannréttindi sem er auðvitað með ólíkindum, að það sé hægt að kvótasetja mannréttindi. En þetta er bara raunsönn lýsing á því hver staðan er. Við erum að tala um einstaklinga sem þurfa á tiltekinni þjónustu að halda en af því að það er ekki í fjárlögum eða það er ekki gert ráð fyrir nema tilteknum fjölda þá bara bíða hinir þangað til seinna — eða aldrei. Það er auðvitað merkilegt að sjá að svo erum við með alls konar hluti í fjárlögum sem eru bara eins og opinn víxill, peningurinn rennur bara út úr ríkissjóði og ekkert fær stöðvað það. En á sama tíma erum við með þetta þjónustuúrræði sem er háð fjármögnun hverju sinni, sem er að mínu mati algerlega fáránlegt.

Eins og var sagt hér í kosningabaráttunni af ákveðnum flokki: Það er nóg til. Þegar maður skoðar svo fjármálaáætlun og fjárlög. Við erum með safnliði í fjárlögum, m.a. fyrir 2022, upp á 35 milljarða. Þeir eiga að hluta til að fara í óvænt og ófyrirséð útgjöld en allt í einu spretta líka peningar upp úr vösum ráðherra sem þeir henda í einhver gæluverkefni hist og her. En á sama tíma bíður svona úrræði. Þetta finnst manni sérstakt. Ég þekki þetta svolítið sveitarstjórnarmegin að sveitarfélög eru að veita fötluðum þjónustu. Við erum með þessa svokölluðu beingreiðslusamninga sem hafa verið einhvers konar ígildi NPA-samninganna þannig að fatlaðir einstaklingar sem leita til sveitarfélaganna eftir þessari þjónustu komast yfirleitt á þessa svokölluðu beingreiðslusamninga með von um að NPA taki síðan við. En þá byrjar þrefið á milli sveitarfélagsins og ríkisins: Fáum við pening eða fáum við ekki pening? Ég veit það bara að heima í mínu byggðarlagi voru margir að bíða eftir NPA-samningum sem ekki hafa fengist. Þetta er auðvitað mjög slæmt og ekki ásættanlegt að við sem samfélag bjóðum þeim sem eru kannski í erfiðustu aðstöðunni upp á þessi vinnubrögð. Það á bara ekkert að eiga sér stað.

Virðulegur forseti. Þetta tiltekna frumvarp sem er til umfjöllunar hér varðar vinnutíma starfsmanna sem veita notendastýrða persónulega aðstoð og þarna er verið að veita eftirgjöf af þeim réttindum sem hafa náðst í gegnum kjarasamninga undangenginna ára. Ég verð bara að lýsa því hér að ég er bara svolítið uggandi yfir því að þannig sé þessu háttað. Mig langar, með leyfi forseta, að fá að lesa aðeins upp úr þessu frumvarpi. Þar stendur í 1. gr.:

„Á eftir 53. gr. a laganna kemur ný grein, 53. gr. b, svohljóðandi: Þrátt fyrir 1. mgr. 53. gr. og 1. mgr. 56. gr. er við veitingu þjónustu á grundvelli 11. gr. laga um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir, nr. 38/2018, í undantekningartilvikum heimilt að haga vinnutíma starfsmanna sem veita þjónustuna þannig að starfsmennirnir fái styttri hvíld en kveðið er á um í 1. mgr. 53. gr. og getur vinnutíminn þá varað samfellt í allt að 48 klukkustundir að hámarki, enda séu eftirfarandi skilyrði uppfyllt:“

Skilyrðin eru m.a. að það sé búið að gera samkomulag á milli sveitarfélags og hlutaðeigandi umsýsluaðila um vinnufyrirkomulag, síðan að þær aðstæður geti skapast að að þetta geti leitt til andlegs eða líkamlegs álags á viðkomandi. Og síðan ef um er að ræða tímabundið ferðalag.

Síðan segir í 2. tölulið 1. gr.:

„Starfsmenn hafi fullnægjandi hvíldaraðstöðu og geti hvílst að lágmarki í sjö klukkustundir samfellt á næturvinnutíma skv. 3. tölul. 52. gr. sem fellur innan vinnutímans, og einungis er gert ráð fyrir tveimur rofum á hvíldinni að hámarki á því tímabili í tengslum við veitingu þjónustunnar.“

Þarna er um að ræða verulega eftirgjöf á því sem um hefur samist á almennum vinnumarkaði í gegnum tíðina. Við erum með skrifaða inn í kjarasamninga 11 tíma hvíld á sólarhring og það varðar við lög ef hvíldin er stytt niður fyrir átta tíma. Það varðar við lög þannig að þarna er verið að óska eftir undanþágu frá gildandi lögum. Ef fólk fer frá 11 tímum niður í átta þá verður til frítökuréttur sem safnast upp og fólk getur nýtt á þann hátt sem það kýs. Þannig að ég verð, hæstv. forseti, að lýsa þeirri skoðun minni að mér finnst að það þurfi að fara varlega í slíkar breytingar. Ég skil þörfina fyrir þjónustu en mér finnst að það eigi ekki að veita þjónustuna á kostnað þeirra sem eru að vinna við þetta. Mér finnst það bara skrýtið. Hæstv. félags- og vinnumarkaðsráðherra nefndi að þetta væri svo dýrt úrræði. Já, það er dýrt að þjónusta veikt fólk. Velferðarkerfi kostar peninga. Ef það á að fara að gera það á kostnað þeirra sem starfa í greininni þá á ég erfitt með að sætta mig við það. Við erum ekkert að breyta vinnutíma hjúkrunarfræðinga eða sjúkraliða af því að úrræðin eru svo dýr á spítölunum. Mér finnst það bara skrýtið að það eigi að fara þessa leið. Það hlýtur að vera hægt að skoða möguleikann á því að breyta vaktafyrirkomulagi þeirra starfsmanna sem starfa við þessa umönnun, það er hægt að fjölga vöktum. Einhver nefndi það í pontu áðan að kannski sé verið að horfa til þess að með þessu sé hægt að spara peninga — á kostnað þeirra sem vinna við þessa þjónustu. Vissulega getur það verið gott að þessi lög séu komin fram en ég er ekki ánægður með þetta innihald. Við eigum, virðulegur forseti, að sjá sóma okkar í því að veita þessi þjónustuúrræði til þeirra sem á þessari þjónustu þurfa að halda og við eigum að gera það eins og fólk. Það þarf ekkert að veita einhvern afslátt af vinnutíma. Við skiljum að það geta verið óvæntar aðstæður. Þannig er það bara á almennum vinnumarkaði líka. Það eru force majeure-ákvæði í kjarasamningum vegna þess að það þarf stundum að vinna aðeins meira vegna óvæntra atvika sem þarf að takast á við og auðvitað mætti það bara vera þannig í þessu tilfelli líka.

Virðulegur forseti. Ég held að velferðarnefnd ætti að skoða þetta og kanna hvort hægt sé að skoða aðra möguleika til þess að láta þessa hluti ganga upp. Hér færðu bara sjö tíma og það má vera rof tvisvar sinnum inn í sjö tímunum. Þú færð kannski að sofa í þrjá og hálfan tíma og svo þarftu að fara að vinna og svo færðu kannski aftur að sofa í þrjá og hálfan eða ekki einu sinni það af því að það er hægt að rjúfa hvíldina tvisvar á þessum sjö klukkutímum. Þannig að í 40 tíma lotu færðu 14 tíma sem eru ekkert endilega samfelldir en á almennum vinnumarkaði færðu 22 og þeir eru samfelldir, 11 tíma hvíld á sólarhring.

Virðulegur forseti. Við eigum að á að halda áfram að ræða um þetta úrræði og sjá til þess að það sé veitt öllum þeim sem þurfa á því að halda. En við eigum ekki að gera það á kostnað þeirra sem veita þessa þjónustu og vinna við hana.