152. löggjafarþing — 64. fundur,  7. apr. 2022.

aðbúnaður, hollustuhættir og öryggi á vinnustöðum.

590. mál
[22:33]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (P) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni yfirferðina. Það var dálítið gaman að heyra hvað hann hefur marga hatta, hvað hann getur komið að þessu máli úr ólíkum áttum. Og það var sérstaklega gott að fá þetta sjónarmið manns með reynslu af verkalýðsbaráttu, vegna þess að eins og hv. þingmaður segir þá er NPA, eins og önnur velferðarþjónusta, kostnaðarsöm, en hún má ekki vera á kostnað fólksins sem starfar við hana. Þannig að ég verð nú að viðurkenna að mér þótti dálítið leiðinlegt að fá engar umsagnir úr samráðsgátt, eins og við fáum oft með svona málum, vegna þess að ráðuneytið sagðist hafa haft samráð við verkalýðsfélögin sem að þessu kæmu og þar með væri þetta bara allt í lagi. En við vitum nú að stundum getur útkoman úr þannig samráði hjá ráðuneytum endað öðruvísi en hlutaðeigandi könnuðust endilega við. Þannig að það verður fróðlegt að sjá hvernig umsagnir koma við þetta mál frá aðilum sem koma að þessu. Ég vona bara að þetta leysist allt farsællega í velferðarnefnd.

En mig langaði að spyrja hv. þingmann út af hinum hattinum sem hann hefur, sem er hattur sveitarstjórnarmanns til margra ára, og í rauninni um allt þetta innleiðingartímabil NPA-þjónustunnar, kannski ekki NPA-þjónustuna sem slíka heldur sérstaklega varðandi búsetukosti fyrir fatlað fólk, vegna þess að það er annað bráðabirgðaákvæði sem ég held að sé ekki fylgt nógu vel eftir í þessum lögum. Fötluðu fólki sem býr á stofnunum eða í herbergjasambýlum skulu bjóðast aðrir búsetukostir. Hvernig er samtalið á milli ríkis og sveitarfélaga varðandi kostnaðinn við þetta? Og hver ber t.d. ábyrgð á því að fatlað fólk sem getur mögulega átt rétt á þessari þjónustu fái að vita að það eigi rétt á henni þannig að það geti tekið upplýsta ákvörðun um hvort það sækist eftir því að fá sitt eigið húsnæði?