152. löggjafarþing — 64. fundur,  7. apr. 2022.

aðbúnaður, hollustuhættir og öryggi á vinnustöðum.

590. mál
[22:35]
Horfa

Guðbrandur Einarsson (V):

Virðulegur forseti. Ég er ekki fæddur í gær og þess vegna hef ég kannski búið mér til margra hatta í gegnum tíðina, tekist á við ýmislegt. Já, ég þekki þetta auðvitað, bæði eftir að hafa starfað innan verkalýðshreyfingarinnar en líka sem sveitarstjórnarmaður þar sem ég er búinn að vera frá 1998 með einhverjum hléum, þannig að ég hef verið þar lengi. En já, manni finnst þetta sérstakt, að við skulum alltaf vera að glíma við — af því að hér var nú nefnt innleiðingartímabil, hversu langan tíma þetta tekur og að það þarf endalaust að vera að berja á þessu og einhverra hluta vegna tekst það ekki.

En hv. þingmaður nefndi líka búsetukosti fyrir fatlaða einstaklinga. Þar held ég að samtal á milli ríkis og sveitarfélaga sé lítið sem ekkert. Það er helst að sveitarfélögin séu í samskiptum við félag eins og Brynju – hússjóð sem hefur tekið að sér að byggja úrræði fyrir fatlaða einstaklinga sem sveitarfélögin hafa síðan tekið að sér að reka. Þau eru líka að gera það fyrir stofnframlög þannig að sveitarfélag hefur lagt til stofnframlag þegar Brynja – hússjóður fer að byggja. Það getur oft verið í formi afhendingar á lóð og niðurfellingu á gatnagerðargjöldum, en það lækkar þann kostnað sem fellur til við byggingu á þessum úrræðum. Ég veit að Brynja – hússjóður hefur verið að horfa til þess að gera meira í framhaldinu, en samskipti ríkis og sveitarfélaga varðandi þetta hafa bara engin verið.