152. löggjafarþing — 64. fundur,  7. apr. 2022.

aðbúnaður, hollustuhættir og öryggi á vinnustöðum.

590. mál
[22:37]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (P) (andsvar):

Herra forseti. Samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks kveður á um að fatlað fólk eigi að hafa tækifæri til að velja sér búsetustað. Brynja – hússjóður er alveg frábært framtak en ég held að það nægi bara ekki. Ég sé fyrir mér t.d. að félagsþjónusta sveitarfélaga þyrfti að hafa fólk á sínum snærum sem færi á milli búsetuúrræði þar sem fólk er í einhverju sambýlafyrirkomulagi, fólk sem væri bara í samskiptum við fötluðu einstaklingana til að fá fram þeirra raunverulegu óskir varðandi búsetu. Svo væri bara unnið úr því. Það kostar sitt og þá þarf að finna út úr því hvort það er ríki eða sveitarfélög sem axla það.

En mig langar að spyrja hérna síðustu sekúndurnar: Kostnaðarskiptingin á NPA-þjónustunni sjálfri, 3/4 hjá sveitarfélögum, 1/4 hjá ríki. Þetta átti að endurskoðast fyrir ári. Veit þingmaðurinn eitthvað um hvar það samtal stendur?