152. löggjafarþing — 64. fundur,  7. apr. 2022.

aðbúnaður, hollustuhættir og öryggi á vinnustöðum.

590. mál
[22:39]
Horfa

Guðbrandur Einarsson (V) (andsvar):

Virðulegur forseti. Nei, ég hef bara ekki hugmynd um það hvar það stendur, ekki frekar en við sem stöndum hér inni á Alþingi. Ég veit ekki til þess að Samband íslenskra sveitarfélaga sé í einhverjum viðræðum um það. Það er ekki neitt sem ég hef vitneskju um.

Varðandi svo rétt einstaklinga til að velja sér samastað, hann á auðvitað að vera ótvíræður eins og réttur okkar til að velja okkur samastað, hvar við viljum búa. En það hefur oft orðið þannig að stóru sveitarfélögin hafa verið að búa til úrræði fyrir hópa sem standa höllum fæti. Ég nefni sem dæmi Reykjavík eða Reykjanesbæ með litlu sveitarfélögunum þar í kring. Þannig að oft verður þetta þannig að það þarf að byggja upp þessa félagslegu þjónustu inni í einhverjum kjörnum eins og Reykjavík og þannig vill það verða. En eitthvað þyrfti að gerast til þess að sveitarfélögin í kringum Reykjavík gerðu meira í málunum.