aðbúnaður, hollustuhættir og öryggi á vinnustöðum.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir býsna góða yfirferð yfir þetta mál. Mig langar að fara svolítið yfir á sveitarstjórnarstigið, eins og gjarnt er í samtölum við hv. þingmann, sem er reynslumikill sveitarstjórnarmaður, og velta upp þeirri stöðu sem er uppi þegar við hér, löggjafinn, tökum ákvörðun um það með setningu laga að veita þjónustu — sem er algjör grundvallarþjónusta í þágu mannréttinda, þjónusta við fólk sem býr við skertan aðbúnað, skerta möguleika — en ákveðum um leið að sveitarfélögin annist kostnaðinn að þremur fjórðu hlutum.
Oft er talað um það hér í þingsal að við gerum of mikið af slíku og ég veit að mjög oft er talað um þetta á vettvangi Sambands íslenskra sveitarfélaga. Ég veit að mikið var talað um þetta á síðustu ráðstefnu sem var haldin. Þá var mikið um það rætt hvernig sveitarfélögin þyrftu sífellt að taka við og veita slíka grunnþjónustu. Man hv. þingmaður eftir umræðunni í kringum setningu þessara nauðsynlegu laga, þ.e. hvað rætt var, hvernig sveitarfélögum leist á að þurfa að bera 75% af kostnaðinum? Hvað var rætt ykkar á milli? Sveitarfélögin eru nú þegar að glíma við ákveðið tekjumódel sem gengur ekki upp.