152. löggjafarþing — 64. fundur,  7. apr. 2022.

aðbúnaður, hollustuhættir og öryggi á vinnustöðum.

590. mál
[22:43]
Horfa

Guðbrandur Einarsson (V) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég held að það hafi verið þannig, allt frá því að þessi málaflokkur færðist til sveitarfélaga, að sveitarfélögin hafi haft áhyggjur af þróun málaflokksins, ekki vegna þess að ekki væri vilji til staðar til að veita umrædda þjónustu heldur bara að það skorti fjármagn. NPA-samningar eru dýrir, eins og hæstv. ráðherra sagði. Núna liggja fyrir nokkrir NPA-samningar, sem óskað er eftir í mínu sveitarfélagi, sem kosta frá bilinu 15 og upp í 50 milljónir. Það getur riðið litlum sveitarfélögum að fullu, það er vont að þurfa að segja þetta. Við höfðum áhyggjur af því að verið væri að setja aukna byrði á sveitarfélagið. Reykjanesbær er af þeirri stærðinni að það væri kannski það sveitarfélag á Suðurnesjum sem helst gæti ráðið við þetta. En uppreiknaður er þessi málaflokkur mörg hundruð milljónir í mínus, uppsafnað, það liggur alveg fyrir. Sveitarfélögin eru að burðast með þennan málaflokk og ráða illa við hann. Samtal verður að eiga sér stað á milli sveitarfélaganna og ríkisins um það hvernig veita á þessa þjónustu. Það á að veita hana en það verður að eiga sér stað umræða og samkomulag um það hvernig eigi að fjármagna þetta.