aðbúnaður, hollustuhættir og öryggi á vinnustöðum.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Það er mjög áhugavert að rýna í umsagnir sambandsins á þessum tíma. Þar er verið að skoða hvernig málum er háttað á Norðurlöndum og greinilega hefur verið tekist nokkuð á um hversu algengt það er á Norðurlöndunum að öll umsýsla og utanumhald með samningum af þessu tagi sé alfarið í höndum sveitarfélaga, og þá er ég að tala um umsýsluna, allt verkefnið. Eitt er að sinna þessari þjónustu, hitt er bara allt ferlið í kringum þetta sem kallar á mikla rannsókn á því hvaða þjónustu viðkomandi þarf að fá og hvaða einstaklingar geta komið að henni. En það kemur fram í minnisblaði, sem fylgir frá sveitarfélögum, að í greinargerðinni sé talað um að á Norðurlöndunum séu 60% í höndum sveitarfélaga en (Forseti hringir.) í raun hafi hlutfallið verið miklu lægra, að sveitarfélögin hafi kannski verið að sjá um 10–15% af þessari (Forseti hringir.) umsýslu, sem er auðvitað töluvert. Aftur leggst þetta af fullum þunga á sveitarfélögin.