152. löggjafarþing — 64. fundur,  7. apr. 2022.

aðbúnaður, hollustuhættir og öryggi á vinnustöðum.

590. mál
[22:46]
Horfa

Guðbrandur Einarsson (V) (andsvar):

Virðulegur forseti. Þetta kallar á umræðu um tekjuskiptingu ríkis og sveitarfélaga. Nálægðin við íbúana hefur gert það að verkum að þjónustustigið hefur verið að aukast. Við getum ekki líkt því saman hvað við vorum að gera fyrir fatlað fólk fyrir 20 árum og hvað við erum að gera núna. Þetta er bara allt annar veruleiki sem við erum að horfa til. Við veitum líka, ef við horfum á grunnskólann, allt aðra þjónustu í grunnskólanum. Villingarnir — okkur var bara hent út úr tíma og svo vorum við bara í fótboltaleik. En það er ekki þannig í dag. Við erum að takast á við alls konar vandamál og reyna að hjálpa fólki til að þroskast og verða gildir samfélagsþegnar. En okkur skortir fjármagn. Ef sveitarfélögin eiga að sjá um alla þessa þjónustu verða að fylgja því peningar.