aðbúnaður, hollustuhættir og öryggi á vinnustöðum.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir framsöguna og mig langar, eins og margir aðrir sem hafa komið hér í andsvör áður, að fá aðeins innsýn í þetta frá sjónarhorni sveitarstjórnarmanna og sveitarfélaga. Þarna er verið að setja ákveðið verkefni í hendur sveitarfélaga en ekki er verið að fjármagna það nægilega vel. Það er líka verið að setja þrjá fjórðu af kostnaðinum yfir á sveitarfélögin án þess að breyta nokkuð tekjumódeli þeirra um leið. Er það einsdæmi að slíkt sé gert? Eða er það mjög algengt að ríkið segi: Hér er verkefnið, sveitarfélög, sjáið um það. Þið fáið kannski ákveðinn pening en ekki of mikið. Já, og svo fáið þið ekkert meiri tekjur, þið verðið bara að skera niður hjá ykkur í einhverju öðru. Nú hefur verið mikil umræða, t.d. um hjúkrunarheimili og annað úti á landi, þar sem sveitarfélögin hafa verið að segja sig frá slíkum verkefnum. Hefur einhvern tíma komið upp slík umræða í tengslum við þetta, að sveitarfélögin segi sig hreinlega frá þessum samningum?