152. löggjafarþing — 64. fundur,  7. apr. 2022.

aðbúnaður, hollustuhættir og öryggi á vinnustöðum.

590. mál
[22:50]
Horfa

Guðbrandur Einarsson (V) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég held að það hafi oft komið til tals, ekki bara í því sveitarfélagi þar sem ég bý heldur mörgum sveitarfélögum, hvort ekki væri rétt að skila þessum málaflokki rétt eins og mörg sveitarfélög skiluðu hjúkrunarheimilunum af því að þau réðu ekki við þann rekstur. Og þó að málaflokkurinn grunnskólar eigi heima hjá sveitarfélögunum þá eru það sveitarfélögin sem sjá um aðbúnaðinn, byggingarnar, starfsmennina, launin, en síðan kemur námskráin frá ríkinu og sveitarfélögin verða auðvitað að fara eftir henni þannig að í gegnum slíka hluti er hægt að setja kvaðir á sveitarfélögin. Svo er líka bara spurning með það að vera fatlaður einstaklingur, er hann veikur? Hver er skilgreiningin á fötlun, telst hún til veikinda eða er um að ræða félagslega þjónustu? Þar verða oft til grá svæði. Við sjáum deilur sem hafa átt sér stað í Reykjavík, milli ríkis og sveitarfélaga, um hver hafi átt að veita þjónustuna. Var það ríkið sem átti að veita hjúkrunarþjónustu eða sveitarfélagið sem átti að veita félagslega þjónustu? Þarna eru þessi gráu svæði sem við erum endalaust að takast á um. Við erum með unga fatlaða einstaklinga sem þurfa á mikilli þjónustu að halda, jafnvel er það eiginlega hjúkrunarþjónusta sem á þarf að halda en það lendir á sveitarfélögunum. En lítil börn vilja bara fá að vera heima hjá mömmu og pabba, þau vilja ekki vera á spítala endalaust. Þess vegna þurfum við að taka á þessu sem slíku, þetta er þjónusta við einstaklinginn, en ríki og sveitarfélög eiga ekki að vera að rífast um það hver eigi að borga þetta.