152. löggjafarþing — 64. fundur,  7. apr. 2022.

aðbúnaður, hollustuhættir og öryggi á vinnustöðum.

590. mál
[22:52]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Það er því miður þannig að ég veit persónulega um dæmi um fólk sem hreinlega hefur flúið land, farið til annarra Norðurlanda til að geta fengið slíka samninga. En mig langar að fá hv. þingmann til að setja verkalýðshattinn á sig, við höfum gaman af því að skipta um hatta. Nú er hvíldartími settur inn í lög að miklu leyti vegna öryggis, ekki bara öryggis starfsmannsins heldur líka öryggis þess sem verið er að sinna. Í greinargerðinni með frumvarpinu stendur að oft sé um erfitt starf að ræða. Erum við ekki að tefla í tvísýnu með því að gera þetta?