aðbúnaður, hollustuhættir og öryggi á vinnustöðum.
Virðulegur forseti. Eins og ég sagði áðan þá erum við að tala um áunnin réttindi þegar við tölum um hvíldartíma. Það var bara búið til í gegnum kjarasamninga. Við erum enn þá að auka við. Í síðustu kjarasamningum og þeim kjarasamningum sem unnir hafa verið undanfarið er litið til vinnutímastyttingar vaktavinnufólks, til svokallaðs betri vinnutíma, og þar er verið að horfa til þess að fólk sem þarf að vinna vaktavinnu eigi að vinna styttri vinnutíma. Það er eðlilegt að verið sé að horfa á þennan hóp á sama hátt, fyrir utan það að mér er umhugað um, þar sem ég hef tekið þátt í að berjast fyrir tilteknum réttindum, að þau haldi sér og vil ekki gefa afslátt, af því að það skapar fordæmi fyrir fleiri. Þess vegna vil ég að velferðarnefnd skoði þetta sérstaklega.