152. löggjafarþing — 64. fundur,  7. apr. 2022.

aðbúnaður, hollustuhættir og öryggi á vinnustöðum.

590. mál
[22:55]
Horfa

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir (P):

Virðulegur forseti. Við ræðum hér einn anga mikilvægs máls sem snýr að notendastýrðri persónulegri aðstoð, felur í sér mjög mikilvæg réttindi fatlaðs fólks. Mig langar af þessu tilefni að tala ekki um nákvæmlega þessa lagabreytingu, sem kemur allt of seint eins og svo ótrúlega margt þegar kemur að réttindum fatlaðs fólks, heldur hreinlega að fara bara yfir samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks sem íslenska ríkið hefur fullgilt en ekki lögfest að neinu ráði. Við fullgildum þennan samning, held ég, 2016 þannig að síðan þá eru komin — nú er orðið svolítið seint liðið á og ég er orðin ansi hæg í reikningnum — sex ár. Mér finnst við ekki einu sinni byrjuð á því að innleiða þennan samning. Ég tók nokkur ákvæði úr samningnum og ég er ekki hálfnuð með hann og ég veit að ég mun ekki komast í gegnum þetta allt í þessari ræðu en það er stöðugt tilefni til að rifja þetta upp vegna þess að þetta er mannréttindasamningur sem er búið að ákveða að setja á ís. Hvort sem það er meðvituð ákvörðun eða af sinnuleysi þá er mér eiginlega slétt sama, nákvæmlega jafn ömurlegt hvort heldur sem það er. Mig langar aðeins að fara yfir þennan samning sem íslensk stjórnvöld eru búin að fullgilda en eru algerlega skeytingarlaus um þegar kemur að því að lögfesta hann.

Byrjum á þeim almennu skuldbindingum sem finna má í 4. gr. samningsins. Þar kemur fram, með leyfi forseta:

„Aðildarríkin skuldbinda sig til þess að efla og tryggja að fullu öll mannréttindi og grundvallarfrelsi fyrir allt fatlað fólk án mismununar af nokkru tagi á grundvelli fötlunar. Aðildarríkin skuldbinda sig í þessu skyni til:

a) að samþykkja alla viðeigandi löggjöf og ráðstafanir á sviði stjórnsýslu og aðrar ráðstafanir til að tryggja þau réttindi sem viðurkennd eru með samningi þessum.“

Hér komum við inn á NPA, kvótasetninguna og það að við séum ekki einu sinni að uppfylla kvótann og ýmislegt fleira sem ég kem nánar að á eftir. En í b-lið segir:

„að gera allar viðeigandi ráðstafanir, þar á meðal með lagasetningu, til þess að gildandi lögum, reglum, venjum og starfsháttum, sem fela í sér mismunun gagnvart fötluðu fólki, verði breytt eða þau afnumin.“

Hér langar mig að staldra við, virðulegur forseti, vegna þess að eins og ég hef komið inn á margoft og ég kom raunar inn á í jómfrúrræðu minni á þingi, sællar minningar, þá innihalda lögræðislögin okkar t.d. enn þá skýra og beina mismunun gagnvart fötluðu fólki. Það er einfaldlega þannig að þar er ákvæði sem heimilar frelsissviptingu á grundvelli geðsjúkdóms eins og sér, ef viðkomandi er með alvarlegan geðsjúkdóm eða líkur eru á að svo sé. Ef það eru líkur á því að þú sért geðveikur þá má svipta þig frelsi eða ef ástandi þínu er þannig háttað að því megi jafna við alvarlega geðveiki. Það er alveg ótrúlegt. Ef þú lætur eins og alvarlega geðveik manneskja þá höfum við þar með rétt til að svipta þig frelsi. Þetta eru lögin okkar í dag, bara eitt dæmi um hversu vel okkur gengur með lögfestingu þessa samnings. Þetta er reyndar eitthvað sem þyrfti ekki þennan samning til til að vera algjörlega bannað. Þetta er eitthvað sem er búið að benda okkur á síðan 1994 af engum minni aðila heldur en Evrópunefnd um varnir gegn pyndingum og annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Síðan 1994 er búið að vera að benda okkur á þessa mismunun gagnvart fötluðu fólki í okkar löggjöf og svo langt aftur nær sinnuleysið að það hefur ekki ein einasta ríkisstjórn frá þeim tíma drattast til að breyta þessum ólögum.

Næst kemur c-liður, með leyfi forseta:

„að taka mið af vernd og framgangi mannréttinda fatlaðs fólks við alla stefnumótun og áætlanagerð.“

Við höfum heyrt í umræðunni um þetta mál að í fjármálaáætlun sem liggur fyrir er ekki gert ráð fyrir því að fjölga NPA-samningum þrátt fyrir skýra löggjöf þess efnis að samningarnir ættu að vera miklu fleiri heldur en þeir eru nú þegar. Bara eitt dæmi um að taka mið af vernd og framgangi mannréttinda fatlaðs fólks við alla stefnumótun og áætlanagerð. Því er bara gleymt í fjármálaáætlun. Við getum alla vega gleymt því að þau fái aukin réttindi með þessari fimm ára fjármálaáætlun þessarar ríkisstjórnar sem skreytir sig svo gjarnan með mannréttindum á tyllidögum en er svo frekar treg til að láta þau verða að veruleika, sér í lagi ef þau kosta eitthvað. En ég held því fram hér, virðulegur forseti, að mannréttindi kosti og þau eru þess virði, svo sannarlega. Ef við ákveðum að við viljum vera þannig samfélag að mannréttindi séu raunverulega einhvers virði þá þurfum við bara að gjöra svo vel og borga fyrir það. Svo einfalt er það. Það hefði kannski verið hægt að gera eitthvað fyrir þessar 700 milljónir sem einhverjir einkavinir fengu í þóknanir fyrir að selja vinum sínum banka hérna um daginn, bara svo eitt dæmi sé nefnt um forgangsröðum.

Ég ætla að færa mig yfir í næsta lið, d-lið:

„að aðhafast ekkert það sem fer í bága við samning þennan og sjá til þess að opinber yfirvöld og stofnanir vinni í samræmi við ákvæði hans.“

Við höfum verið að tala um það hvernig ríkið sækir rétt sinn mjög hart gagnvart t.d. öryrkjum, líka t.d. gagnvart fatlaðri konu sem sækist eftir því að vera fósturforeldri. Hið opinbera er mjög hart gegn réttindum fatlaðs fólks, bara ógeðslega hart á köflum, þannig að ekki erum við að standast þetta ákvæði. Og ég er bara hérna í innganginum að þessum samningi, um almennar skuldbindingar, samningi sem telur margar greinar og ég er bara rétt að byrja og okkur gengur ekki neitt með neitt af þessu.

Þá að e-lið:

„að gera allar viðeigandi ráðstafanir til þess að uppræta mismunun á grundvelli fötlunar af hálfu sérhvers einstaklings, samtaka eða einkaaðila.“

Það er nú þannig, virðulegur forseti, að ég held að það hafi verið 2018 sem við settum lög um bann við mismunun á grundvelli kynþáttar eða uppruna og litarháttar og þá mátti ekki setja almenn lög sem bönnuðu með sama móti mismunun á grundvelli fötlunar og annarra mismununarþátta. Þetta þurfti að skoða svo miklu betur og setja í einhverja nefnd og tefja, tefja, tefja, komið í einhverja 70 starfshópa. Á þeim tíma þá fannst mér þetta einmitt óréttlátt og skrýtið og óskiljanlegt og ég lagði það á mig að draga hæstv. þáverandi félagsmálaráðherra, Ásmund Einar Daðason, upp í þessa pontu til að lýsa því yfir að hinir mismununarþættirnir yrðu komnir inn í lögin á innan við ári eftir setningu þessara laga. Þetta gerði hann bara til að halda mér góðri, held ég, en svo fór að hann losaði sig bara við þennan þátt úr ráðuneytinu sínu á þessu ári, kom honum til forsætisráðherra og þurfti þá ekki að standa við stóru orðin og hún stóð ekki við þau og er ekki enn þá búin að standa við vegna þess að þessi löggjöf er til meðferðar núna í þinginu fjórum árum seinna. Það er nú aldeilis að það er verið að gera, eins og hér stendur í þessum inngangsorðum, allar viðeigandi ráðstafanir til að uppræta mismunun á grundvelli fötlunar. Einmitt. Tekur bara svona fjórum árum lengur en að uppræta mismunun á grundvelli annarra mismununarþátta.

Síðan ætla ég að fara í 3. lið 4. gr., sem eru þessar almennu skuldbindingar sem ég er að vísa í, virðulegi forseti, og þar kemur fram:

„Við þróun og innleiðingu löggjafar og stefnu við innleiðingu samnings þessa og við annað ákvörðunartökuferli varðandi málefni fatlaðs fólks, skulu aðildarríkin hafa náið samráð við fatlað fólk og tryggja virka þátttöku þess, þar á meðal fatlaðra barna, með milligöngu samtaka sem koma fram fyrir þess hönd.“

Eins og það að hafa ekki samráð við NPA-samtökin við gerð frumvarps um NPA-þjónustu. Akkúrat. Náið samráð. Eða eins og t.d. að hafa nákvæmlega ekkert samráð við notendur geðheilbrigðisþjónustu þegar var verið að lögfesta þvílíkar þvinganir og ég veit ekki hvað gagnvart fólki sem reyndar nýtir alla heilbrigðisþjónustu, og bara almennt beitingu nauðungar, að sprauta fólk niður, að binda það niður, að neyða í þvagpróf, fylgjast með netnotkun þeirra, banna þeim að fara út í sígó eða hringja símtöl eða fá heimsóknir. Það var allt gert án nokkurs samráðs við notendur geðheilbrigðisþjónustunnar. En auðvitað, við getum ekki ætlast til þess að eitthvað eins og samráð við fatlað fólk, náið samráð jafnvel eins og segir í þessum samningi sem við erum búin að fullgilda, fari fram á litla Íslandi. Við erum jú svo lítil og getum eiginlega ekkert gert þetta almennilega, við erum svona mannréttindasúkkulaði sem finnst alltaf samt rosalega gaman að teikna okkur sem mannréttindaofurveldi á alþjóðavettvangi. En svo þegar við komum hérna heim þá erum við svo smá og lítil og svo mikið súkkulaði að það er ekki hægt að gera neitt. Það er heldur ekki til peningur og eiginlega enginn tími til að klára þetta. Við þurfum að gera þetta einhvern tímann seinna. Alltaf eru mannréttindi fatlaðs fólks látin bíða.

Þá sný ég mér að 5. gr. samningsins, um jafnrétti og bann við mismunun. Ég er svo sem aðeins búin að fara inn á þetta, en þar segir:

„1. Aðildarríkin viðurkenna að allar manneskjur eru jafnar fyrir og samkvæmt lögum og eiga rétt á jafnri vernd og jöfnum ávinningi af lögum án nokkurra mismununar.

2. Aðildarríkin skulu banna hvers kyns mismunun á grundvelli fötlunar og tryggja fötluðu fólki jafna og árangursríka réttarvernd gegn mismunun af hvaða ástæðu sem er.

3. Aðildarríkin skulu, í því skyni að efla jafnrétti og uppræta mismunun, gera allar viðeigandi ráðstafanir til að tryggja að fötluðu fólki standi viðeigandi aðlögun til boða.“

Ég er ekki einu sinni komin að hlutanum sem varðar aðgengi, virðulegi forseti, því við erum að falla á hverju einasta af þessum prófum sem er búið að setja hérna og ég er bara búin fara yfir tvær greinar í þessum samningi sem við erum búin að fullgilda fyrir sex árum síðan. Okkur tekst ekki einu sinni að uppfylla grunnkvaðirnar eins og bann við mismunun, jafnrétti, þessar almennu skuldbindingar, innganginn í samningnum. Hvernig er hægt að ætlast til þess að það sé mark á því takandi að það standi yfir höfuð til að innleiða flóknari þætti þessa frumvarps? Eins og t.d. það sem ég fór áðan í andsvari við hv. þm. Hönnu Katrínu Friðriksson um sem sneri að því að fatlað fólk á rétt á því að vera ekki fangelsað fyrir það eitt að vera fatlað. Það á rétt því að sæta ekki frelsissviptingu fyrir það eitt að vera álitið með geðsjúkdóm, að líkur séu á að svo sé eða ástandi þess sé þannig háttað að því megi jafna við að vera með alvarlegan geðsjúkdóm. Halló, halló. Hversu margir hafa einhvern tímann á ævinni verið á þeim stað í lífinu að hægt væri að jafna þeirra ástandi við alvarlegan geðsjúkdóm? Við megum samkvæmt lögum vænta þess að það megi svipta okkur frelsi fyrir það að virka geðveik. Það er í alvörunni þannig að það eru ekki einu sinni neinar kröfur um eitthvert sérfræðimat á því hvaða geðsjúkdómur eigi að vera að hrjá þig eða hvort sjálfum þér eða öðrum stafi einhver ógn af þessum ætlaða geðsjúkdómi þínum eða ástandi sem líkja megi við alvarlegan geðsjúkdóm. Nei, það er nóg að þú sért með alvarlegan geðsjúkdóm, skiptir ekki máli hvaða, eða að líkur séu á því að þú sért með alvarlegan geðsjúkdóm, já eða að þú hagir þér eins og þú sért með alvarlegan geðsjúkdóm þótt það liggi ekki fyrir að þú sért með hann. Það er nóg til að svipta fatlað fólk og bara venjulegt fólk með einhvers konar geðrænar áskoranir frelsi sínu.

Ég á bara tvær mínútur eftir, virðulegi forseti, og ég er ekki komin að aðgenginu, því mikilvæga ákvæði, en ég vil koma því að alveg sérstaklega. Það er 9. gr. samningsins sem snýr að aðgengi. Þar er sérstök skylda sett á aðildarríkin að gera fötluðu fólki kleift að lifa sjálfstæðu lífi og taka fullan þátt á öllum sviðum lífsins og við skulum gera viðeigandi ráðstafanir til að tryggja fötluðu fólki aðgengi til jafns við aðra að efnislegu umhverfi sínu, samgöngum, upplýsingum og samskiptum, þar með samskiptatækni og annarri aðstöðu eða þjónustu sem opin er eða veitt er almenningi. Þetta er mjög mikilvægt. Sömuleiðis kemur fram í 2. tölulið 9. gr.:

„e) láta í té ýmiss konar aðstoð og þjónustu milliliða, þar á meðal fylgdarmanna, lesara og faglærðra táknmálstúlka, í því skyni að auðvelda aðgengi að byggingum og annarri aðstöðu sem opin er almenningi,

f) efla önnur viðeigandi form aðstoðar og stuðnings við fatlað fólk í því skyni að tryggja aðgang þess að upplýsingum.“

Þetta og fleira setur þær skyldur á okkar herðar að veita fólki alla þá aðstoð sem það þarf til að geta tekið virkan þátt og eðlilegan þátt í samfélaginu. Það gerum við ekki með því að vista fullfrískt, ungt, fatlað fólk, inni á elliheimilum eða með því að setja kvóta á þann stuðning sem fatlað fólk á rétt á eða með því að svipta það rétti til að taka ákvarðanir, einfaldlega vegna þess að það er fatlað og svo mætti lengi telja. Mér finnst það alveg skýrt, meira að segja í þessari stuttu yfirferð og ég mun örugglega fara í aðra þegar þetta mál kemur í 2. umr., vegna þess að mér finnst ekki nógu mikið talað um samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks sem við eigum að vera löngu búin að lögfesta. (Forseti hringir.) Ef okkur er einhver alvara með þessu þá látum við þetta ekki bíða í sex ár í viðbót.