152. löggjafarþing — 64. fundur,  7. apr. 2022.

aðbúnaður, hollustuhættir og öryggi á vinnustöðum.

590. mál
[23:10]
Horfa

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir ræðuna. Ég er almennt þeirrar skoðunar að þessi málaflokkur, staða fólks með fötlun, sé einfaldlega of lítið ræddur hér í þessum sal á hinum breiðari grunni. Hann er yfirleitt ræddur út frá áskorunum, vandamálum, en sjaldnast út frá því hvernig auka megi tækifæri og bæta lífsgæði, út frá jákvæðri nálgun um það hvernig megi byggja upp. Hv. þingmaður var að ræða um málaflokkinn dálítið heildstætt, samninginn sem á eftir að lögfesta, en hluti af lífsgæðum er rétturinn til að fá að taka þátt á vinnumarkaði, rétturinn til atvinnuþátttöku. Þetta hefur Þroskahjálp talað töluvert mikið um, að það sé hópur í samfélaginu sem gleymist og ekki sé gert ráð fyrir. Ég spyr hvort þingmaðurinn deili því með mér að með því séum við sem samfélag að missa af miklum tækifærum, þ.e. þegar það er hópur sem í mörgum tilvikum er einfaldlega skilinn eftir.