152. löggjafarþing — 64. fundur,  7. apr. 2022.

aðbúnaður, hollustuhættir og öryggi á vinnustöðum.

590. mál
[23:12]
Horfa

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir (P) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég er hjartanlega sammála hv. þingmanni. Ég held að þessi hópur sé ekki bara skilinn eftir, hann er hreinlega útilokaður frá því að geta tekið þátt í atvinnulífinu og líka frá því að geta tekið þátt í samfélaginu til jafns við aðra. Það er þess vegna sem ég er að fara yfir þennan samning. Þessum samningi var ekki og er ekki ætlað að færa fötluðu fólki ný réttindi heldur var hann til þess gerður að reyna að verða til þess að fatlað fólk geti notið réttinda til jafns við aðra. Staðreyndin er sú að það gera þau bara alls ekki. Og mögulega er þetta gríðarlega takmarkaða aðgengi fatlaðs fólks að vinnumarkaði leifar af þessu módeli og þessu viðmóti sem var og er að mörgu leyti enn mjög ríkjandi gagnvart fötluðu fólki sem er að þau séu skjólstæðingar sem þurfi að þjóna og passa upp á og vernda, séu næstum því eins konar börn. Þetta er viðhorf sem fatlað fólk hefur sagt stríð á hendur og ég meina það í jákvæðustu merkingu þess orðatiltækis. Þau vilja fara frá því sem talað er um sem velferðarmódel fötlunar eða umönnunarmódel yfir í mannréttindamiðaða nálgun, yfir í sjálfstæðisbaráttu fatlaðs fólks — frá því að vera stöðugt sett í einhverja bása eftir fötlun sinni, vera stöðugt í einhverri meðferð. Það er alltaf verið að lækna þau, hvort sem um er að ræða geðveiki eða aðra fötlun, í staðinn fyrir að grípa tækifærin, eins og hv. þingmaður kemur svo vel inn á, færa þeim tækifærin og sjá tækifærin í því að viðurkenna þau augljósu sannindi að fatlað fólk er fólk til jafns við aðra og á að njóta réttinda eftir því.