aðbúnaður, hollustuhættir og öryggi á vinnustöðum.
Virðulegi forseti. Ég er ánægð með að heyra hv. þingmann tala um að ekki sé nóg að fullgilda samninginn, það þurfi að lögfesta hann. Ef við skoðum myndina heildstætt sjáum við t.d. menntakerfið okkar. Þar er veruleikinn enn sá að aðgengi fatlaðra ungmenna að menntun, t.d. eftir framhaldsskóla, er takmarkað. Eina breytan sem útskýrir það er fötlunin, engin önnur. Við tökum rétt af ungu fötluðu fólki til að stofna eigið heimili, flytja að heiman. Framboð á húsnæði er takmarkað. Eina breytan sem útskýrir það hvers vegna svo er er fötlun þeirra. Það er líka þetta atriði sem ég nefndi í fyrra andsvari mínu með færri tækifæri á vinnumarkaði. Þetta er því gegnumgangandi stef frá æsku, svo taka ungdómsárin við og þetta er viðvarandi upp á fullorðinsár. Mér finnst mikilvægt að halda þessu til haga af því að þó að maður sé að segja hin augljósu sannindi þá vill það stundum gleymast að þetta er fjölbreyttur hópur fólks úr öllum þjóðfélagshópum, öllum aldurshópum, frá Íslandi, annars staðar frá hér heima, með ólíkar þarfir. Við þurfum einhvern veginn að nálgast tækifærin út frá því eins og með alla aðra. Af því við erum að tala um tækifæri vildi ég bara aftur nefna þann punkt að þetta skiptir máli í samhengi við tækifæri hverrar og einnar manneskju, en ég lít svo á að við séum líka að svipta samfélagið heildstætt tækifærum þegar við umgöngumst og nálgumst einn hóp með þessum hætti.