aðbúnaður, hollustuhættir og öryggi á vinnustöðum.
Virðulegur forseti. Ég er bara algerlega sammála, samfélagið er að missa af mörgum tækifærum. En við lítum líka, eins og hv. þingmaður kemur inn á, fram hjá fjölbreytileikanum innan þessa hóps. Þegar við tökum hann bara sem eina stærð, sem er fatlað fólk, þá gleymum við því hversu fjölbreytilegur hópurinn er. Mig langar að taka dæmi úr þeim málaflokki sem tengist þessu og ég þekki kannski hvað best. Það snýr einmitt að lögræðislögunum sem ég hef talað mjög mikið gegn í þessum ræðustól og vil fara í heildarendurskoðun á. Þingið hefur samþykkt að fara í þá heildarendurskoðun en það gengur óbærilega hægt, eins og svo margt tengt þessum málaflokki. Það er gríðarlega þungur baggi að það er alltaf verið að svipta fatlað fólk lögræði. Það er verið að taka af því réttinn til að taka ákvarðanir og setja það í hendurnar á einhverjum lögfræðingi eða aðstandanda. Viðkomandi er ekki treyst til að taka ákvarðanir vegna þess að þau hafa að einhverju leyti skerta getu til að taka ákvarðanir. Það er önnur saga. En þetta er líka algerlega á skjön við samninginn. Þetta fólk á að fá stuðning við ákvarðanatöku en það á ekki að taka af þeim réttinn til ákvarðanatöku.
En svo að ég komi mér að efninu er til vægara úrræði sem er stundum notað, aðallega kannski fyrir eldra fólk sem er farið að glíma við elliglöp eða eitthvað slíkt. Þau geta ráðið sér ráðsmann sem aðstoðar þau við ákvarðanatöku en það er töluvert minna inngrip í réttindi þeirra og frelsi en að vera svipt lögræði sem er gríðarlegt inngrip, það er verið að svipta fólk réttinum til að nýta réttindi sín. Fólk með þroskaskerðingu getur ekki nýtt sér þetta vægara úrræði vegna þess að sum þeirra geta ekki skrifað undir viljayfirlýsingu um að vera með ráðsmann. Þarna er fólki í raun mismunað innbyrðis, þ.e. þegar kemur að aðgengi að vægara úrræði vegna fötlunar.