152. löggjafarþing — 64. fundur,  7. apr. 2022.

aðbúnaður, hollustuhættir og öryggi á vinnustöðum.

590. mál
[23:20]
Horfa

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir (V):

Virðulegur forseti. Ég vil taka hér til máls um þetta mál sem varðar auðvitað mikilvæga, og ég leyfi mér að segja grundvallarhagsmuni í lífi þess fólks sem um ræðir. Frumvarpið er í sjálfu sér ekki flókið og útskýrir sig sjálft. Þar er verið að leitast við að bæta lífsgæði. En mig langaði hér til að ræða um efni sem við erum nú ansi oft að ræða, sem er þessi verkaskipting milli ríkis og sveitarfélaga. Við heyrum að það er vaxandi þungi í gagnrýni af hálfu sveitarfélaganna, réttmætri gagnrýni, vil ég leyfa mér að segja, þar sem þau benda á að það sé auðvelt að slá sig til riddara, vil ég leyfa mér að segja, af hálfu ríkisstjórnarinnar með því að setja áferðarfalleg lög með fallegum boðorðum en reikningurinn er sendur annað, hann er sendur til sveitarfélaganna. Það er ekki sérstaklega stórt að gera það gagnvart sveitarfélögunum en þegar maður horfir síðan á hver birtingarmyndin verður fyrir það fólk sem á að njóta þjónustunnar þá verður myndin töluvert svartari.

Ég vildi nálgast þetta mál líka út frá því sem ágæt flokkssystir mín, hv. þm. Hanna Katrín Friðriksson, nefndi hér áðan, að þegar við erum að tala um NPA-samningana þá erum við að tala um kannski eitt stærsta frelsismál á Íslandi í dag. Það rímar kannski við það samtal sem ég átti við hv. þm. Þórhildi Sunnu Ævarsdóttur um frelsi og tækifæri. En það sem mig langaði til að nefna var að hv. þm. Hann Katrín Friðriksson lagði einmitt fram fyrirspurn tengda þessu efni um verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga þar sem hún spurði hæstv. félags- og barnamálaráðherra, Ásmund Einar Daðason, að því hvernig sveitarfélögin ættu að mati ráðherrans að forgangsraða umsækjendum um þessa þjónustu, um NPA-samninga, sem við vitum að varða grundvallarhagsmuni í lífi fólks sem þessa samninga fær, þegar á fjárlögum væri gert fyrir 120–130 samningum — við vitum að þeir eru dýrir — til loka ársins 2022, en það lá fyrir að sú tala myndi aldrei ná að uppfylla þörfina á þjónustunni. Þannig að hér erum við komin með lagasetningu og við erum komin með vilyrði og svo erum við með þann veruleika að það er ekki hægt að ná fram markmiðunum vegna þess að fjármagnið vantar. En þar kom heiðarlegt svar sem er í sjálfu sér rétt, að það er á ábyrgð sveitarfélaganna að forgangsraða umsækjendum um þjónustu á grundvelli þeirra reglna sem þau setja sér.

En þetta er sérstök nálgun og sér í lagi þegar við höfum í huga þá hagsmuni sem þarna eru undir, að við erum með lög um þjónustu við fatlað fólk. Sú lagasetning er rammalög. Við erum með viðmiðunarreglur sem þurfa að vera í samræmi við svokallaða lögmætisreglu. Sveitarfélögin bera lagalega ábyrgð á framkvæmd aðstoðarinnar og þau eiga að setja sér nánari reglur um útfærslu, þannig að löggjafinn er þarna búinn að færa þeim í hendur ákveðið verkefni sem þeim er lögum samkvæmt skylt að sinna og veita en fá ekki fjármagn til. Ég held að það þurfi að hafa það í huga þegar við erum hérna með þetta frumvarp til meðferðar. Það er gott og ég er ánægð með það, en það breytir ekki þessum veruleika. Og aftur sjáum við að þegar rætt er t.d. um mat á áhrifum kemur ein stutt og snaggaraleg setning: Verði frumvarpið óbreytt að lögum þykir fyrirséð að það muni ekki hafa áhrif á fjárhag ríkissjóðs. Það er alveg rétt. En veruleikinn er óbreyttur hvað þetta varðar, þ.e. fjárhagsstöðuna.

En ég myndi í lokin vilja fá að koma aðeins inn á annað, af því að nú erum við farin að skoða áhrif frumvarpa ekki bara út frá fjárhagslegum hagsmunum heldur út frá jafnréttissjónarmiðum. Nú er það auðvitað þannig að það starfsfólk sem vinnur í þessum geira og veitir þessa þjónustu er að uppistöðu til konur. Konur eru í miklum meiri hluta þegar kemur að almennum umönnunarstörfum hérna á landinu. Þá má gera ráð fyrir því að þessar reglur, sem ég styð, hafi meiri áhrif á konur en karla. En þetta þarf auðvitað að hafa í huga og það þarf að líta til þess heildstætt líka þegar við höfum í huga hver veruleikinn er utan vinnumarkaðarins varðandi aðra umönnunarbyrði kvenna og afleiðingar hennar.