aðbúnaður, hollustuhættir og öryggi á vinnustöðum.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni yfirferðina. Mig langar aðeins að spyrja út í framtíðarsýnina í lögunum sem snúast um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir, eins og hún birtist í þessum tröppugangi á innleiðingu NPA-samninganna í bráðabirgðaákvæði og í því að það hafi átt að endurskoða framkvæmdina innan þriggja ára frá gildistöku laganna. Sá tímafrestur rann út fyrir ári. Þá veltir maður eðlilega fyrir sér framtíðarsýninni: Hvert á að stefna? Og hversu lengi er hægt að halda, ekki bara þjónustu heldur aðgengi að grundvallarréttindum fólks í gíslingu þess að ríki og sveitarfélög geta ekki komið sér saman um úr hvorum vasa á sömu buxunum eigi að taka peninginn? Ég held að öllum, fyrir utan kjörna fulltrúa, sé slétt sama hvor hluti hins opinbera það er sem stendur straum af þessum kostnaði. Fólk vill bara fá þjónustuna, fólk vill bara fá þessi mannréttindi, hvort sem sveitarfélögin borga 75% eða 70%, eins og ég vil meina að þau ættu að fá að borga. Þetta á ekki að skipta nokkru einasta máli. Þessi tröppugangur á fjölda samninga milli ára gefur til kynna að einhver tala verði hin endanlega niðurstaða, en getum við haft einhvern kvóta inni í þessum lögum til langframa? Þurfa þau ekki að vera almennara eðlis en svo?